Fyrir þá sem ekki muna var Jens fyrstur presta hér á landi til að fá leyfi til að halda svokallaða „rokkmessu“ og muna viðstaddir vel eftir því þegar Jens svipti sig hempunni í miðri messu í Stóra-Vatnshornskirkju um árið og hengdi á sig rafmagnsgítarinn og rokkaði svo út messuna ásamt fleira tónlistarfólki úr Dölum.
Mikil eftirsjá var af Jens úr sókninni en hann var afar vel liðinn í Dölum og þóttu ræður hans oft á tíðum með eindæmum skemmtilegar. Hér fyrir neðan er hægt að hlusta á Þorgeir ræða við þennan fyrrum Dalamann.
{audio}mp3/jensnielsen_23122011.mp3{/audio}