Þjóðhátíðardagurinn 17.júní var haldin hátíðlegur í Búðardal í dag. Skrúðganga var frá dvalarheimilinu Silfurtúni klukkan 13:00 og gengið var á mótssvæði hestamannafélagsins Glaðs þar sem hefðbundin hátíðarhöld fóru fram og fjallkonan hélt hátíðarræðu.
Fjallkona að þessu sinni var Jóhanna Sigrún Árnadóttir frá Stóra-Vatnshorni. Að lokinni hátíðardagskrá var kaffisamsæti í Leifsbúð. Sjá má myndband frá hátíðarhöldunum hér fyrir neðan.