Halldór hefur verið burðarás í tónlistarlífi Dalamanna um langan aldur sem kórstjóri, harmonikuleikari,tónlistarkennari,skólastjóri og fleira mætti til telja. Starf hans hefur sannarlega eflt samhljóm í héraði, hvatt unga til dáða á sviði tónlistar og hefur Halldór verið fyrirliði á sorgar- og gleðistundum í öllum okkar kirkjum og félagsheimilum hvenær sem eftir því hefur verið leitað.
Í þróttmiklu tónlistarlífi felst ótrúlegur sameingingarmáttur sem er fámennu byggðarlagi afar mikilvægur og gefandi. Fögnum vegtyllu Halldórs að Bessastöðum í gær, samgleðjumst og minnumst þess um leið að blómlegt menningarlíf er ekki sjálfgefið. Það þarf mennina til og lífsþróttinn, en af því eigum við enn nóg – það er bara að hafa augun opin og virkja mannauðinn.
Sunnudaginn 15.apríl 2012 síðastliðinn hittum við Halldór og tókum tali. Viðtalið fór fram í Hjarðarholtskirkju en þennan dag fór fram ferming þriggja ungmenna úr Dalabyggð og þá sem svo oft áður sá Halldór Þórðarson um undirleik á orgel Hjarðarholtskirkju. Viðtalið má finna hér fyrir neðan og í myndbandasafni hér á síðunni.
Sjá einnig ljósmyndir frá athöfninni hér.
Leiðrétting:
Fögur er kirkjan, þökk sé Rögnvaldi en ekki Guðjóni.
„Í viðtalinu við Halldór Þ. Þórðarson í Hjarðarholtskirkju hér á Búðardalur.is segi ég kirkjuna vera hugverk Guðjóns Samúelssonar hins fræga arkitekts sem teiknað hefur fegurstu byggingar á Íslandi margar hverjar.Hann kemur þó hvergi nærri þegar um Hjarðarholtskirkju er að ræða -hún er hugverk Rögnvaldar Ólafssonar húsameistara en hann er fyrsti íslenski arkitektinn í Íslandssögunni segja fræðin.Beðist er hér með velvirðingar á þessum mismælum.“ – Virðingarfyllst; Þorgeir Ástvaldsson