Guðríður Guðbrandsdóttir 107 ára í dag

0
2034

gudridurgudbrandsElsti núlifandi Íslendingurinn, Guðríður Guðbrandsdóttir er 107 ára í dag. Þessi ótrúlega flotta Dalakona er fædd þann 23.maí 1906, hún er fædd að Spágilsstöðum í Laxárdal og bjó um áratugaskeið í Búðardal.

Foreldrar Guðríðar voru Guðbrandur Jónsson bóndi og Sigríður Margrét Sigurbjörnsdóttir. Guðríður var sjötta í röðinni í hópi 11 systkyna.

Eiginmaður Guðríðar var Þorsteinn Jóhannsson verslunarmaður en árið 1952 fluttust þau úr Búðardal suður til höfuðborgarinnar. Þorsteinn lést árið 1985. Kjördóttir þeirra hjóna og lífsförunauta var Gyða Þorsteinsdóttir sem lést árið 2000. Fósturbörnin urðu tvö, þau Sigurður Markússon sem nú er látinn og Halldóra Kristjánsdóttir.
Í fyrrahaust heimsóttum við Guðríði og áttum við hana spjall. Í þeirri heimsókn sagði Guðríður okkur meðal annars að besta veganesti hennar væri hreyfing og jákvæðni. Við óskum Guðríði innilega til hamingju með þennan merka áfanga.
Horfa má á viðtalið sem við tókum við Guðríði á síðasta ári hér fyrir neðan.