Óskað eftir stuðningi Haraldar Benediktssonar

0
1011

hallibenAlmennur stjórnmálafundur var boðaður í Leifsbúð í Búðardal í gærkvöldi en það var Haraldur Benediktsson alþingismaður úr Sjálfstæðisflokki sem boðaði til fundarinns. Kjördæmavika er nú á alþingi en þá ferðast alþingismenn um sín héruð og funda með heimamönnum.

Haraldur opnaði fundinn með því að fara vítt og breitt yfir sviðið í stjórnmálum líðandi stundar og fór yfir fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar sem lagt var fram á dögunum.

Fyrirferðarmest var þó umræða um sjúkraflutninga, heilbrigðismál og samgöngur í héraðinu. Þórður Ingólfsson héraðslæknir fór stuttlega yfir staðreyndir varðandi sjúkraflutninga í héraðinu en fyrir liggur krafa frá Velferðarráðuneytinu þess efnis að fækka skuli sjúkrabifreiðum á Vesturlandi um þrjár og þar af eina í Búðardal. Sú breyting taki gildi í janúar 2014 næstkomandi.

Fækka á um eina sjúkrabifreið í janúar 2014 |Ljósm. Steina MattÞórður fór yfir staðreyndir varðandi fjölda sjúkraflutninga síðastliði ár og ekna kílómetra ásamt tímalengd útkalla. Eftir stutta og hnitmiðaða yfirferð Þórðar um sjúkraflutninga í Dölum og nærsveitum voru fundarmenn sammála um að útreikningar ráðuneytismanna gengju hreinlega ekki upp og væru alvarleg og vanhugsuð aðför að öryggi og velferð íbúa á svæðinu.

Nánar verður fjallað um fyrirhuguð áform Velferðarráðuneytisins um fækkun sjúkrabifreiða í héraðinu innan tíðar hér á vefnum.

Þá tók Eyþór Jón Gíslason  sveitarstjórnarmaður til máls og ræddi um málefni Dvalarheimilisins Silfurtúns og stöðu þess í dag og óskaði eftir aðstoð Haraldar við að tryggja fjámagn til dvalarheimilisins.

Einnig tók til máls Sæmundur Kristjánsson yfirverkstjóri Vegagerðarinnar í Búðardal og lýsti hann bágbornu ástandi vega í héraðinu og nauðsyn þess að fá fjármagn til að endurnýja, lagfæra og viðhalda stofnbrautum og sveitavegum í sýslunni.

Sæmundur sagði það í raun ótrúlegt hvað íbúar héraðsins væru með mikið langlundargeð og hversu slæma vegi íbúar í Dölum létu  bjóða sér við sín daglegu störf og ferðalög innan héraðs. Sæmundur sagði það algjörlega óviðundandi í hugum Dalamanna að engar vegabætur kæmu til sögunnar í Dalabyggð næstu átta til níu árin eða til ársins 2022 samkvæmt samgönguáætlun.

Mörg önnur mál voru rædd á fundinum og fleiri tóku til máls en ljóst er að nú sem aldrei fyrr þurfa Dalamenn að þjappa sér saman, óháð því hvar í flokki þeir standa – og standa saman vörð um þau almennu mannréttindi sem örugg heilbrigðisþjónusta, löggæsla og viðunandi samgöngur eru ótvírætt.

Dalamenn hafa misst mörg dýrmæt störf á fáum árum og má þar helst nefna sýslumannsembættið ásamt því að embætti lögregunnar í Búðardal var lagt niður við fækkun lögregluembætta á landinu en það heyrir nú undir sýslumanninn í Borgarnesi. Þá má nefna stöðu útibússtjóra Arionbanka, útibússtjóra Mjólkurstöðvarinnar og niðurlagningu sláturhússins í Búðardal svo eitthvað sé nefnt.

Haraldur kvaðst lofa að koma skilaboðum fundarmanna til ráðamanna en í sömu setningu sagðist Haraldur ekki geta lofað góðri niðurstöðu fyrirfram.