Opnun stálsmiðju og bílaverkstæðis í Búðardal

0
1018

baeinarssonNæskomandi fimmtudag þann 27.febrúar kl.17:00 mun stálsmiðja, bíla- og vélaverkstæðið B.A.Einarsson opna að Vesturbraut 8 í Búðardal í gamla Megin húsnæðinu.

Í tilefni þess er íbúum Dalabyggðar, Reykhólahrepps og nærsveita boðið að kíkja við, þiggja kaffisopa og léttar veitingar á meðan byrgðir endast.

„Hlökkum til að sjá sem flesta til að fagna með okkur,“ segir í tilkynningu frá Tona og Gróu, Katarínusi, Stefáni og Fanneyju Þóru.