Almennur borgarafundur í Dalabyggð.
Boðað hefur verið til almenns borgarafundar að Hótel Vogi á Fellsströnd, mánudaginn 24.mars næstkomandi klukkan 20:00.
Fundarefni:
– Samgöngumál
– raforkumál
– fjarskiptamál
– önnur mál
Boðaðir hafa verið á fundinn allir þingmenn norðvesturkjördæmis ásamt fulltrúum frá Vegagerðinni, Rarik og aðilum sem hafa með fjarskiptamál svæðisins að gera.
Íbúar Dalabyggðar og nærsveita eru hvattir til að mæta á fundinn og koma hugmyndum sínum og skoðunum á framfæri.