Latínstórsveit Tómasar R. í Búðardal

0
905

buddi-200x284Miðvikudagskvöldið 11.júní verða haldnir tónleikar í Dalabúð í Búðardal þar sem margir helstu latín og djasstónlistarmenn landsins koma fram.

Hljómsveitina skipa auk bassaleikarans Tómarsar, söngvararnir Sigríður Thorlacius og Bógómil Font, Kjartan Hákonarson trompet, Óskar Guðjónsson saxófón, Samúel Jón Samúelsson básúnu, Ómar Guðjónsson gítar, Davíð Þór Jónsson píanó, Matthías MD Hemstock trommur, og Sigtryggur Baldursson kóngatrommur.

Boðið verður uppá danskennslu í hléi og verður hún í umsjá Jóhannesar Agnars Kristinssonar og félaga hans í Salsamafíunni.

Um þessar mundir er verið að vinna að heimildarmynd um Dalamanninn og bassaleikarann Tómas R.Einarsson og tengjast tónleikarnir því verkefni. Það eru menningarfélagið Þaulsetur sf og Bæjarútgerðin ehf sem skipuleggja viðburðinn.

Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.

Tónleikarnir hefjast kl. 20.30 miðvikudaginn 11.júní.