Átt þú myndir úr óveðrinu eða afleiðingum þess?

0
913

vefmyndavel2015Líkt og allir vita hefur mikill veðurofsi verið að ganga yfir landið síðustu klukkustundir.

Heyrst hefur af þónokkrum tjónum af völdum foks, bæði í Búðardal og í sveitunum í kring.

Þak fór af í heilu lagi af gömlu íbúðarhúsi í Miðdölum og þakplötur hafa fokið af nokkrum útihúsum í Laxárdal svo eitthvað sé nefnt.

Rafmagn fór af Dalabyggð í morgun en er nú komið á aftur á flestum stöðum.

Við leitum eftir óveðursmyndum úr Dalabyggð og óskum við vinsamlegast eftir því að fá sendar myndir á póstinn okkar budardalur@budardalur.is