Rjómabúið Erpsstaðir kynnti afurðir sínar í Hörpu

0
1083

rjomabuid-630x351Búnaðarþing 2015 hófst um liðna helgi en kjörorð þingsins í ár er „Opinn landbúnaður“.  Um helgina gafst almenningi kostur á að heimsækja fjölda bóndabæja í Hörpu og kynna sér þau störf sem unnin eru í sveitum landsins.

Landbúnaður er ein mikilvægasta grein sem stunduð er á Íslandi og er undirstaða matvælaframleiðslu.

Í yfirlýsingu bænda á vef Bændablaðsins kemur fram að landsmenn allir eigi landbúnaðinn saman og þess vegna eigi hann að vera aðgengilegur öllum, bændur hafi ekkert að fela.

Ein af þeim fjölmörgu sem kynntu starfsemi sína og framleiðslu í Hörpu um liðna helgi voru hjónin Þorgrímur Einar Guðbjartsson og Helga Elínborg Guðmundsdóttir á rjómabúinu Erpsstöðum í Dölum.

Við stöldruðum við í básnum hjá Þorgrími og áttum við hann stutt spjall.