Í viðtali við Svein Pálsson sveitarstjóra Dalabyggðar á vef Ríkisútvarpsins kemur fram í frétt þann 19.apríl að yfir 70% vega í Dalabyggð séu malarvegir.
Þar er þess getið að umferð um Vesturland undanfarin ár hafi aukist og Snæfellsnes og Dalir séu að auka vinsældir sínar sem áfangastaður ferðamanna.
Haft er eftir Sveini að margir ferðamenn aki yfir í Dali um Skógarstrandarveg á leið sinni frá Snæfellsnesi og sé sá vegur stórhættulegur með einbreiðum brúm og blindhæðum. Sveinn segir að ekki sé stafkrókur um framkvæmdir á malarvegum í Dalabyggð í samgönguáætlun og þarna hafi menn „sofið á verðinum ótrúlega lengi“.
Þá liggur fyrir að umferð erlendra ferðamanna í hópum í rútum og á bílaleigubílum hefur stóraukist um Dali og hafa mörg óhöpp og slys orðið síðastliðin ár sem rekja má til ástands vega og þekkingarleysi ökumanna.
Hér má lesa fréttina á RÚV: http://ruv.is/frett/meira-en-70-vega-i-dalabyggd-eru-malarvegir