Miðvikudagshittingur

0
780

Kæru Dalakonur

Næsti hittingur verður miðvikudaginn 18. október í húsi Rauða krossins klukkan 20. Hugmyndin er að konur hittist, kjafti og kynnist. Þessi hittingur er ætlaður öllum konum, 18 ára og eldri, og börn og karlar eru ekki leyfð, nema undanþága er gefin fyrir börn upp að tveggja ára ef þarf. Af hverju? Þessi kvöld eru hugsuð sem vettvangur fyrir konur til að eiga stund fyrir sjálfar sig, kjafta og kynnast. Kaffi verður í boði en endilega takið með ykkur nasl ef vill. Og handavinnu ef vill. Og aðra drykki ef vill – en aðallega ykkur sjálfar!

Endilega látið þetta berast.