13 sóttu um starf sveitarstjóra Dalabyggðar

0
2002
Horft yfir Búðardal og Hvammsfjörð

Alls sóttu 13 aðilar um starf sveitarstjóra Dalabyggðar en starfið var auglýst á dögunum og rann umsóknarfrestur út þann 9.júlí síðastliðinn.

Á vef Dalabyggðar kemur fram að átta karlar og fimm konur sækist eftir starfinu og farið hafi verið yfir umsóknirnar og ákveðið hvaða umsækjendur verði kallaðir í viðtöl. Það er fyrirtækið Hagvangur sem mun annast ráðningarferlið í samstarfi við nýkjörna sveitarstjórn Dalabyggðar.

Eftirtaldir sóttu um stöðuna. (nöfnin eru í stafrófsröð)

Ernir Kárason, verkefnisstjóri
Gunnólfur Lárusson, rekstrar- og verkefnisstjóri
Hjördís Dröfn Vlhjálmsdóttir, sjálfstætt starfandi
Jónína Kristjánsdóttir, bókari og ráðgjafi
Kristján Sturluson, sérfræðingur
Linda Björk Hávarðardóttir, framkvæmdastjóri
Matthías Magnússon, framkvæmdastjóri
Sigurbjörg Kristmundsdóttir, verslunarstjóri
Sigurður Torfi Sigurðsson, framkvæmdastjóri
Sveinbjörn Freyr Arnaldsson, framkvæmdastjóri
Valdimar Leó Friðriksson, framkvæmdastjóri
Þorbjörg Gísladóttir, skrifstofu- og mannauðsstjóri
Þórður Valdimarsson, verkefnisstjóri