Sturlustefna á Staðarhóli í Saurbæ

0
1848

Sunnudaginn 29.júlí kl. 14 í Tjarnarlundi verður efnt til Sturluhátíðar sem er í senn afmælishátíð Sturlu Þórðarstonar og fullveldisins.

Í undirbúningi er minningarreitur um Sturlu Þórðarson sagnaritara að Staðarhóli Saurbæ í Dalabyggð. Af því tilefni verður efnt til Sturlustefnu að Tjarnarlundi í Saurbæ í Dölum. Meðal efnis á dagskránni er frásögn af fornminjaskráningu á landi Staðarhóls sem unnin var í október síðastliðnum. Þá munu fræðimenn segja frá útgáfu og rannsóknum á verkum Sturlu, Sturlustefnan verður öllum opin.