Ólafsdalshátíð var haldin í Ólafsdal þann 11.ágúst síðastliðinn. Fjölbreytt dagskrá var í boði.
Boðið var uppá gönguferð að víkingaaldarskálanum í Ólafsdal og öðrum minjum og svo var opinn markaður með ýmsu góðgæti úr Dalahéraði. Þá var hátíðardagskrá þar sem meðal annars Eyjólfur Ingvi Bjarnason oddviti Dalabyggðar og Auður Axelsdóttir afkomandi Torfa og Guðlaugar í Ólafsdal fluttu ávörp.
Fjölmargir lögðu leið sína í Ólafsdal í blíðskaparveðri þennan dag. Einn þeirra var Jón Trausti Markússon rafvirki og áhugaljósmyndari og tók hann skemmtilegar ljósmyndir á hátíðinni.
Ljómyndir Jóns Trausta frá hátíðinni má skoða hér fyrir neðan.
Þeir sem vilja kynna sér verkefnið í Ólafsdal geta skoðað vefsíðuna www.olafsdalur.is
Veðrið „lék við hvurn sinn fingur“. Ljósm: Jón Trausti Markússon
Ljósm: Jón Trausti Markússon
Ljósm: Jón Trausti Markússon
Ljósm: Jón Trausti Markússon
Ljósm: Jón Trausti Markússon
Á hringlaga rúst efst á berangursholti fyrir ofan skálarústirnar. Ljósm: Jón Trausti Markússon
Ljósm: Jón Trausti Markússon
Systurnar tvær og sögumaður. Ljósm: Jón Trausti Markússon
Ljósm: Jón Trausti Markússon
Ljósm: Jón Trausti Markússon
Lagt af stað í skoðunarferð. Ljósm: Jón Trausti Markússon
Birna útskýrir fortíðina en ummerki samgöngumáta nútíðarinnar sjást á himni. Rögnvaldur Guðmundsson til halds og trausts. Ljósm: Jón Trausti Markússon