Vefmyndavél Búðardalur.is í Búðardal

Vefmyndavél þessi er staðsett á húsnæði KM-Þjónustunnar við Vesturbraut 20 í Búðardal. Vefmyndavélin hefur verið í gangi nær óslitið síðan vorið 2012 þegar Búðardalur.is fór fyrst í loftið.

Það voru starfsmenn KM-Þjónustunnar og Hilmar Óskarsson rafvirki í Búðardal sem sáu um uppsetningu vélarinnar og eru þeim færðar ævarandi þakkir fyrir. Einnig fær vefmyndavélin tengingu við netið hjá KM-Þjónustunni.

Hreinn Beck streymis sérfræðingur sá vélinni fyrir streymi frá árinu 2012 til maí 2020 og erum við honum endalaust þakklátir fyrir hans hjálp.

Þann 9.maí 2020 keypti Búðardalur.is sér leyfi hjá erlendri streymisveitu til prufu í 3 mánuði og mun staðan verða tekin aftur eftir þann tíma.