Tilkynninguna sem birt var á vef KM-þjónustunnar má einnig lesa hér fyrir neðan.
Tilkynning vegna vöruflutningaþjónustu
Undanfarnar vikur hafa staðið yfir viðræður milli KM þjónustunnar ehf. og Vörumiðlunar ehf. á Sauðárkróki um að Vörumiðlun taki við flutningarekstri KM þjónustunnar. Viðræður hafa gengið vel og náðist sátt um samninga á milli viðkomandi aðila í lok síðustu viku um að Vörumiðlun taki alfarið yfir allan flutningarekstur KM þjónustunnar frá og með 1. mars 2013. KM þjónustan hefur verið með rekstur vöruflutninga í Dölum frá árinu 2000 og í Reykhólasveit frá árinu 2005. Á þeim tíma hafa verið reglulegar áætlunarferðir milli Reykjavíkur, Dala og Reykhólasveitar.
Þá var flutningadeild Kaupfélags Steingrímsfjarðar seld Vörumiðlun. Höfuðstöðvar fyrirtækisins eru á Eyrarvegi 21 á Sauðárkróki en að auki á fyrirtækið húsnæði á Blönduósi. Annars staðar leigir Vörumiðlun aðstöðu. Ákvörðun KM þjónustunnar hvað varðar flutninga er því sú að efna til samstarfs við sterkan flutningsaðila sem Vörumiðlun er.
KM þjónustan mun hér eftir verða afgreiðsluaðili Vörumiðlunar í Búðardal og verður óbreytt fyrirkomulag frá því sem verið hefur hvað varðar þjónustu, áætlanir og afgreiðslu.
Þá verða bílstjórarnir þeir sömu og verið hefur. Það er von KM þjónustunnar og Vörumiðlunar að samstarfið verði farsælt og að viðskiptavinir beggja aðila verði fyrir sem minnstum óþægindum á meðan þessar breytingar ganga yfir.
KM þjónustan vill þakka viðskiptavinum flutningadeildar ánægjuleg viðskipti á liðnum árum og jafnframt bjóða Vörumiðlun velkomna í Dalina. Einnig þakkar KM þjónustan bílstjórum sínum fyrir sín góðu störf og óskar þeim velfarnaðar í starfi hjá Vörumiðlun.
F.h. KM þjónustunnar ehf.,
Karl Ingi Karlsson,
Unnsteinn Árnason og
Þorbjörn Jóelsson
F.h. Vörumiðlunar ehf.,
Magnús Svavarsson framkvæmdastjóri.