Um morguninn verður farið um Laxdæluslóðir og eftir hádegi boðið upp á 2 norrænar leiksýningar – íslenska og finnska. Þá verður blásið til spurningakeppni ásamt því að Dalakonur af tveimur kynslóðum tala um söguna frá eigin brjósti og heimamenn syngja. Um kvöldið verður kvöldverðarboð að hætti Guðrúnar og harmonikuball fyrir unga sem aldna. Hægt er að fá gistingu á staðnum. Dagskráin verður auglýst nánar síðar en hún er fyrir fullorðna og börn eldri en 10 ára.