Þyrla flaug til móts við sjúkrabifreið

0
967

thyrlalhgÞyrla Landhelgisgæslunnar flaug í dag til móts við sjúkrabifreið úr Búðardal vegna bráðaveikinda.

Sjúkrabifreið var kölluð til skömmu fyrir hádegi í morgun vegna bráðaveikinda sem upp komu í sumarbústað á Skógarströnd.

Læknir í Búðardal mat ástand sjúklings þannig að ákveðið var að kalla til þyrlu Landhelgisgæslunnar til móts við sjúkrabifreiðina og tók þyrlan sjúklinginn upp í þyrluna við félagsheimilið Lyngbrekku á Mýrum.

Ekki liggja fyrir upplýsingar um líðan sjúklingsins á þessari stundu.