Sauðburður hafinn í Dölum

0
2191
Lambadrottning á Hróðnýjarstöðum - Ljósmynd: Drífa Friðgeirsdóttir

Sauðburður er hafinn í Dölum en föstudagsmorguninn 31.mars fæddist falleg einlembings gimbur á Hróðnýjarstöðum í Laxárdal. Bændur á Hróðnýjarstöðum eru hjónin Drífa Friðgeirsdóttir og Einar Jónsson. Hróðnýjarstaðir eru eitt stærsta fjárbú í Dölum með ríflega 1.000 fjár.

Fram kemur á Fésbókarsíðu þeirra hjóna að þau hafi orðið mjög hissa þegar þau komu í fjárhúsin í gærmorgun og á móti þeim tók stór og falleg lambadrottning en sauðburður á ekki að hefjast fyrr en í maí mánuði og stendur venjulega sem hæst um miðjan maí.

Lambadrottning og móðir á Hróðnýjarstöðum -Ljósmynd: Drífa Friðgeirsdóttir

Það kemur alltaf fyrir að einstaka ær beri í mars og apríl af slysni, sem eru þá kallaðar fyrirmálsær.

Það er alltaf gaman þegar fréttist af fyrstu lömbunum koma í heiminn í fjárhúsum landsins en það er merki um það að vorið sé á næsta leiti.