Vinningshafar í páskaleiknum

0
1745
Eysteinn, Katrín og Ísak

Það voru hressir ungir krakkar sem tóku þátt í pásakleik Búðardalur.is og KM-Þjónustunnar í Búðardal í dag.

Fyrsta páskaeggið var falið á bakvið sláturhúsið og það voru þau Ísak, Katrín og Eysteinn sem fundu eggið. Vísbending var gefin með því að myndbandi úr dróna var streymt á facebook síðu Búðardalur.is og var drónanum flogið á þann stað þar sem eggið var.

Daniella og Dagný Sara

Síðan voru fleiri egg falin, meðal annars á tjaldsvæðinu og við Mjólkurstöðina. Það voru líka þær Daniella og Dagný Sara sem duttu í lukkupottinn og fundu páskaegg.

Búðardalur.is óskar Dalamönnum og landsmönnum öllum gleðilegra páska.

Myndböndin frá drónanum má sjá hér fyrir neðan.

 

 

Posted by Búðardalur.is | Menningarmiðja Dalanna on 14. apríl 2017

Posted by Búðardalur.is | Menningarmiðja Dalanna on 14. apríl 2017