Jörfagleði 2017 – Dagskrá

0
2668
Ljósm.Búðardalur.is

Taktu mynd á jörfagleðinni og deildu á instagram með myllumerkinu #jorfagleði

Líkt og annað hvert ár verður Jörfagleðin haldin í ár með fjölmörgum viðburðum og uppákomum í Dalabyggð. Dagskrá hátíðarinnar í ár verður sem hér segir.

Merki Jörfagleðinnar

Miðvikudagur 19. apríl frá kl.8:00 – 17:00 /  Opið hús hjá leikskólanum:
Gestum og gangandi verður boðið upp á kaffi og meðlæti allan daginn á leikskólanum í Búðardal. Fátt er betra en fagna sumarkomu og sól með leikskólabörnum.
Dalabúð kl.21:00 – Setning Jörfagleði – Þorrakórinn og Harmonikufélagið Nikkolína


Fimmtudagur 20.apríl (sumardagurinn fyrsti):
Eiríksstaðir kl.11:00 – UDN stendur fyrir 4 km hlaupi frá Eiríksstöðum að Jörva. Verðlaun og Powerade eru við endamarkið. Allir eru velkomnir, ungir sem aldnir, hlaupandi sem gangandi.

Sauðafell kl.13:00-16:00
Bændurnir Finnbogi og Berglind á Sauðafelli bjóða í heimsókn í gamla húsið á Sauðafelli sem hefur nýlega verið gert upp á glæsilegan hátt. Húsið er frá árinu 1897. Nánar hér.

Dalabúð kl.19:30
Spurningakeppni Einars Jóns. Þrír eru í liði og skrá þarf liðin hjá Einari fyrir 19. apríl á netfangið einarjon@audarskoli.is eða í síma 893 9066. Aðgangseyrir er 1.000 kr. og frítt fyrir 16 ára og yngri.


Föstudagur 21.apríl
Dalabúð litli salur kl.18:00
Hollvinafélag Dalabyggðar fundar í litla salnum í Dalabúð kl. 18. Margrét Jóhannsdóttir stjórnar fundinum og fer yfir starfsemi félagsins.

Kl.20:00
Víkingarnir þorðu, þorir þú?
Hvernig líður þeim sem hefur sett allt sem hann á á einn bát og lagt af sað í leit að betra lífi?Manni sem sér ekki lengur landið sem hann hefur lagt að baki og veit ekki hvernig landið sem hann er að leita að lítur út?Ein-söng-leikurinn Hvað er bak við ystu sjónarrönd fjallar um tilfinningaferðalag forfeðranna, landnámsmannanna. Voru þeir hugrakkir og stórhuga eða ringlaðir og fífldjarfir?Fylgst er með einum þeirra, Ísgerði, undirbúa ferðina yfir hafið, takast á við þær hættur sem þar bíða og berjast fyrir því sem hún telur rétt hverju sinni.  Í sögunni er fléttað saman sögu Ísgerðar og gamalli íslenskri tónlist. Höfundur, sögumaður og söngkona er Svanlaug Jóhannsdóttir. Aðgangseyrir er 1.000 kr. og frítt fyrir 16 ára og yngri.

Dalakot kl.23:00
DJ Maggi heldur uppi fjörinu fram á nótt. Aldurstakmark er 20 ár og aðgangseyrir 1000 kr.


Laugardagur 22.apríl
Laugar í Sælingsdal kl.10:00
Firmakeppni UDN í innanhúsknattspyrnu verður haldin á Laugum kl. 10. Liðin mega vera kynjablönduð, lágmarksaldur er 14 ára og að minnsta kosti fimm í hverju liði. Skráning er á netfanginu udn@udn.is. Sjá nánar hér.

Kl.10:00
Íþróttamót Hestamannafélagsins Glaðs – nánar á www.gladur.is

Jörvi opið hús kl.10:00 til 16:00
Bjarnheiður og Reynir bjóða þér í heimsókn að Jörva. Einnig verður listasýning á verkum Guðrúnar Tryggvadóttur.

Eiríksstaðir kl.13:00
Lifandi sögusýnig. Þarna getur þú séð hvernig Sigurður Jökulsson bóndi á Vatni tekur á móti ferðamönnum á Eiríksstöðum eins og landsfrægt er orðið.

Tjarnarlundur í Saurbæ kl.13:00
Davíðsmótið í bridge. Davíðsmótið er kennt við Davíð Stefánsson (1933-2015) bónda á Saurhóli. Skráning er hjá Guðmundi á netfanginu kjarlak@simnet.is eða í síma 434 1521. Mótsstjóri verður Þórður Ingólfsson. Þátttökugjald er 2.000 kr.

Dalabúð kl.16:00
Breiðfirðingakórinn fagnar 20 ára afmæli sínu í ár og af því tilefni heimsækir kórinn átthagana og býður Dalamönnum og öðrum gestum Jörvagleði til afmælistónleika í Dalabúð. Efnisskrá tónleikanna er fjölbreytt og samanstendur af upprifjun laga frá þessum 20 árum, en auk þess verður frumflutt glænýtt lag sem samið var sérstaklega í tilefni afmælisins og heitir Um átthaganna slóð.  Aðgangur er ókeypis. Sjá nánar hér.

Dalabúð kl.20:00
DJ ball fyrir unglingana í Dalabúð. DJ Dagur og Helgi Fannar spila fyrir 11-13 ára  kl. 20-21 og 14-18 ára kl. 20-22 í litla salnum í Dalabúð. Enginn aðgangseyrir. Foreldrafélag Auðarskóla sér um gæslu.

Dalakot kl.22:00 til 00:00
Happy hour. Aldurstakmark er 20 ár.

Dalabúð kl.23:00
Dansleikur með hljómsveitinni Meginstreymi. Aðgangseyrir er 3.000 kr og aldurstakmark er 18.ár. Sjá nánar hér.


Sunnudagur 23.apríl
Sauðafell kl.13:00-16:00
Bændurnir Finnbogi og Berglind á Sauðafelli bjóða í heimsókn í gamla húsið á Sauðafelli sem hefur nýlega verið gert upp á glæsilegan hátt. Húsið er frá árinu 1897. Nánar hér.

Dvalarheimilið Silfurtún kl.14:00
Kór eldri borgara, Glaðar raddir, syngur nokkur lög og harmonikufélagið Nikkolína spilar einnig á Silfurtúni kl. 14.

Dalabúð kl.20:00
Pörupiltar – Dóri Maack, Nonni Bö og Hermann Gunnarsson eru harðir í horn að taka en engu að síður óhræddir við að takast á við stórar spurningar um ástir og örlög, tilgang lífsins, heimspeki og daður. Aðgangseyrir er 1.000 kr. og frítt fyrir 16 ára og yngri.

Hver er nú þetta?
Ásdís Melsteð hefur safnað saman myndum af Dalamönnum frá því að þeir voru börn. Sýningin ferðast á viðburði hátíðarinnar og fólk á að giska á hver einstaklingurinn er.

Dagskrá Jörfagleði 2017 er fengin af dalir.is


Hvað er svo Jörfagleði?

Hin svokallaða Jörfagleði var vikivakadansleikur sem haldinn var árlega á jólum í Haukadal í Dalasýslu seint á 17. öld og snemma á 18. öld. (Um vikivakadansleiki þar sem fólk söng og dansaði og skemmti sér við ýmiss konar dulbúningsleiki eins og hestleik, Háa-Þóruleik og Þingálpnsleik sjá Jón Samsonarson, Kvæði og dansleikir I-II [Reykjavík, 1964].)Þess háttar dansleikir virðast hafa verið sérstaklega vinsælir á Íslandi á þessum tíma. Álíka frægar og Jörfagleðin voru Ingjaldsgleði undir Jökli og Stapagleði, en við höfum líka fregnir af öðrum vikivakaveislum, til dæmis í Skálholti, Efra-Seli í Hreppum, Þingeyrum og Flangastöðum á Garðskaga. Vel eru líka þekktar sagnir um Dansinn í Hruna og á Bakkastað.Kirkjumenn og embættismenn voru ekki sérstaklega hrifnir af hegðun manna á þessum samkomum og þeirra síst Björn sýslumaður Jónsson sem afstýrði Jörfagleðinni fyrst 1695. Mikið var drukkið á þessum samkomum og Jörfagleðin varð afar fjölmenn þegar Staðarfellsgleðin í Dalasýslu var úr sögunni seint á 17 öld. Til Jörfa kom fólk langt að, frá Skógarströnd og Hrútafirði auk Dalasýslu. Sumt vinnufólk fékk meira að segja að hafa það í samningum sínum að það hefði leyfi til að fara þangað. Má segja að þessa samkomur hafi verið svipaðar og nútíma Acid House veislur í Bretlandi.Sagt er að dansað hafi verið í baðstofunni á Jörfa, og leiknir Hoffinnsleikur, hindaleikur og Þórhildarleikur. En það var ekki allt og sumt eins og Hjörtur Pálsson bendir á í grein sinni Jörfagleði í Dölum (Tímariti Þjóðræknisfélags Íslendinga, 1964, 31-36):

Við síðustu Jörfagleðina, sem haldin var, er sagt, að komið hafi undir nítján börn. Fylgdi það sögunni, að ekki hefði alls staðar verið hægt um vik að feðra þessa anga. Séra Einar Jónsson að Kirkjubæ hefur það eftir Jóni Sigurðssyni í Njarðvík, að þau hafi ekki verið 19, heldur 30, og sýnir þetta, hve jólagleðin á Jörfa hefur verið alræmd.

En gleðin virtist einnig hafa haft kraft af öðrum toga. Bann Björns Jónssonar við Jörfagleði árið 1695 (vegna sögusagna um siðleysi) var árangurslaust, utan að hann dó sjálfur sama ár. Eins og Hjörtur Pálsson skrifar: „Hafði … efnum hans hnignað mjög síðan hann dæmdi af gleðina“.Jóni Magnússyni sýslumanni í Dalasýslu varð meira ágengt snemma á 18.öld þegar skemmtunin var bönnuð fyrir fullt og allt. Skömmu eftir þetta missti Jón embættið og slapp naumlega við að vera hýddur og tekinn af lífi fyrir ýmiss konar lögbrot. Hann dó seinna í sárri fátækt. Óheppni Jóns var af mörgum talin bera vott um „reiði álfa og landvætta sem áttu að hafa tekið þátt í gleðinni.“ Hér stóð huldufólk með vinnumönnum á móti yfirstéttinni.

Heimildir: Vísindavefurinn