{"id":4000,"date":"2026-10-11T00:25:43","date_gmt":"2026-10-11T00:25:43","guid":{"rendered":"https:\/\/budardalur.is\/?page_id=4000"},"modified":"2026-10-11T00:25:43","modified_gmt":"2026-10-11T00:25:43","slug":"um-vefinn","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/budardalur.is\/index.php\/um-vefinn\/","title":{"rendered":"Um vefinn"},"content":{"rendered":"<p><em>Efni af eldri \u00fatg\u00e1fu B\u00fa\u00f0ardalur.is, var\u00f0veitt \u00ed Vefsafni. L\u00fdsingar \u00e1 \u00fej\u00f3nustu og tengili\u00f0um eiga vi\u00f0 \u00feann t\u00edma.<\/em><\/p>\n<p>\u00cd einni setningu m\u00e1 segja a\u00f0 markmi\u00f0 \u00feessarar vefs\u00ed\u00f0u s\u00e9\u00a0a\u00f0 stu\u00f0la a\u00f0 var\u00f0veislu menningartengdra heimilda \u00far Dalabygg\u00f0 \u00ed v\u00ed\u00f0ustu merkingu.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 var s\u00ed\u00f0la \u00e1rs \u00e1ri\u00f0 2010 a\u00f0 Sigur\u00f0ur Sigurbj\u00f6rnsson keypti l\u00e9ni\u00f0 B\u00fa\u00f0ardalur.is \u00ed \u00feeim tilgangi a\u00f0 safna undirskriftum \u00e1 netinu til a\u00f0 m\u00f3tm\u00e6la ni\u00f0urlagningu eina st\u00f6\u00f0ugildis l\u00f6greglumanns \u00ed D\u00f6lum. Alls s\u00f6fnu\u00f0ust um 1400 undirskriftir \u00e1 netinu og var \u00feeim komi\u00f0 \u00ed hendur \u00d6gmundar J\u00f3nassonar d\u00f3msm\u00e1lar\u00e1\u00f0herra.\u00a0 Allar uppl\u00fdsingar og fr\u00e9ttir sem fram komu \u00e1 undirskriftas\u00ed\u00f0unni m\u00e1 finna h\u00e9r \u00e1 \u00feessari s\u00ed\u00f0u. Fr\u00e9ttir fr\u00e1 \u00feessum t\u00edma m\u00e1 finna undir:\u00a0<a href=\"https:\/\/vefsafn.is\/20210618145245mp_\/http:\/\/budardalur.is\/forsida\/loeggaeslumal\"><em>Fors\u00ed\u00f0a-fr\u00e9ttir-l\u00f6gg\u00e6slum\u00e1l<\/em><\/a>, en undirskriftalistann sem afhentur var \u00d6gmundi m\u00e1 finna h\u00e9r \u00e1 s\u00ed\u00f0unni undir:\u00a0<em>Dalal\u00edf-l\u00f6gg\u00e6slum\u00e1l-undirskriftalisti 2010.<\/em><\/p>\n<p>Eftir \u00feessa vinnu kvikna\u00f0i s\u00fa hugmynd hj\u00e1 Sigur\u00f0i a\u00f0 halda l\u00e9ninu og nota \u00fea\u00f0 \u00e1fram D\u00f6lunum til heilla. \u00dea\u00f0 var svo flj\u00f3tlega eftir a\u00f0 \u00feessi hugmynd kvikna\u00f0i a\u00f0 \u00deorgeir \u00c1stvaldsson Fellsstrendingur me\u00f0 meiru kom inn \u00ed verkefni\u00f0 me\u00f0 Sigur\u00f0i og hefur \u00deorgeir s\u00e9\u00f0 um vi\u00f0t\u00f6l sem tekin hafa veri\u00f0 fyrir vefinn \u00e1samt vinnu vi\u00f0 efnis\u00f6flun.<\/p>\n<p>Helgi \u00de\u00f3r Gu\u00f0mundsson kerfisfr\u00e6\u00f0ingur hefur s\u00e9\u00f0 um forritun \u00e1 vefnum en Helgi starfar sem kerfisstj\u00f3ri hj\u00e1 prentsmi\u00f0junni Prentmet ehf sem er ein st\u00e6rsta prentsmi\u00f0ja landsins. \u00dear hefur hann sinnt margv\u00edslegum hlutverkum \u00fe.m.t. vefh\u00f6nnun, vefumsj\u00f3n og marka\u00f0ssetningu \u00e1 netinu. Helgi var hvatama\u00f0ur og hugmyndasmi\u00f0ur \u00e1 bakvi\u00f0\u00a0<a title=\"DFS | Su\u00f0urlandi\" href=\"https:\/\/vefsafn.is\/20210618145245mp_\/http:\/\/www.dfs.is\/\" target=\"___wb_replay_top_frame\" rel=\"noopener noreferrer\">DFS.is<\/a>\u00a0en DFS er sunnlenskur fr\u00e9ttavefur rekinn samhli\u00f0a Dagskr\u00e1nni Fr\u00e9ttabla\u00f0i Su\u00f0urlands.<\/p>\n<p>Markmi\u00f0i\u00f0 me\u00f0 vefnum er a\u00f0 virkja Dalamenn sem og brottflutta til \u00feess a\u00f0 safna saman \u00e1 einn sta\u00f0 menningargildum tengdum D\u00f6lum \u00ed hva\u00f0a formi sem er s.s. lj\u00f3smynum, kvikmyndum, s\u00f6gum, lj\u00f3\u00f0um, fr\u00e1s\u00f6gnum og jafnvel \u00fdkjus\u00f6gum. Einnig a\u00f0 birta fr\u00e9ttir \u00far h\u00e9ra\u00f0inu af \u00fev\u00ed sem er a\u00f0 gerast \u00e1 l\u00ed\u00f0andi stundu sem og a\u00f0 safna saman uppl\u00fdsingum um a\u00f0ra mi\u00f0la sem fjalla um m\u00e1lefni tengd D\u00f6lum. Vefnum er \u00e6tla\u00f0 a\u00f0 efla og styrkja fer\u00f0a\u00fej\u00f3nustu \u00e1 sv\u00e6\u00f0inu og skapa n\u00fdjan vettvang fyrir heimamenn til a\u00f0 koma hugmyndum s\u00ednum, verkefnum e\u00f0a hug\u00f0arefnum \u00e1 framf\u00e6ri me\u00f0 einf\u00f6ldum h\u00e6tti.<\/p>\n<p><a href=\"https:\/\/vefsafn.is\/20210618145245mp_\/http:\/\/budardalur.vinnsla.com\/wp-content\/uploads\/2016\/11\/fridjonthordarson.jpg\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" src=\"https:\/\/vefsafn.is\/20210618145245im_\/http:\/\/budardalur.vinnsla.com\/wp-content\/uploads\/2016\/11\/fridjonthordarson-200x300.jpg\" alt=\"fridjonthordarson\" width=\"200\" height=\"300\" srcset=\"https:\/\/vefsafn.is\/20210618145245mp_\/http:\/\/budardalur.is\/wp-content\/uploads\/2016\/11\/fridjonthordarson-200x300.jpg 200w, https:\/\/vefsafn.is\/20210618145245mp_\/http:\/\/budardalur.is\/wp-content\/uploads\/2016\/11\/fridjonthordarson.jpg 301w, https:\/\/vefsafn.is\/20210618145245mp_\/http:\/\/budardalur.is\/wp-content\/uploads\/2016\/11\/fridjonthordarson-280x420.jpg 280w\" sizes=\"auto, (max-width: 200px) 100vw, 200px\"\/><\/a><strong>Fri\u00f0j\u00f3n \u00de\u00f3r\u00f0arson<\/strong><br \/>\n\u00c9g hef kosi\u00f0 a\u00f0 tileinka \u00feessa menningars\u00ed\u00f0u okkar Dalamanna,\u00a0 Daladrengnum g\u00f3\u00f0a og st\u00f3rvini m\u00ednum Fri\u00f0j\u00f3ni \u00de\u00f3r\u00f0arsyni fr\u00e1 Brei\u00f0ab\u00f3lssta\u00f0 \u00e1 Fellsstr\u00f6nd.<br \/>\nFri\u00f0j\u00f3n var s\u00e1 ma\u00f0ur sem hva\u00f0 \u00f6tulast bar\u00f0ist fyrir framf\u00f6rum og uppbyggingu \u00ed Dalas\u00fdslu alla s\u00edna t\u00ed\u00f0.\u00a0 Fri\u00f0j\u00f3n var f\u00e6ddur \u00feann 5. febr\u00faar \u00e1ri\u00f0 1923, og l\u00e9st \u00feann 14. desember \u00e1ri\u00f0 2009.<\/p>\n<p>Gu\u00f0 blessi minningu \u00feessa g\u00f3\u00f0a Daladrengs.<\/p>\n<p><em>Sigur\u00f0ur Sigurbj\u00f6rnsson.<\/em><\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>\u00c1sta R. J\u00f3hannesd\u00f3ttir, forseti Al\u00feingis, minntist Fri\u00f0j\u00f3ns \u00de\u00f3r\u00f0arsonar, fyrrverandi al\u00feingismanns og r\u00e1\u00f0herra \u00e1 \u00feingfundi daginn eftir andl\u00e1t hans.<\/p>\n<p>Minningaror\u00f0 \u00feingforseta fara h\u00e9r \u00e1 eftir:<\/p>\n<p><em>Fri\u00f0j\u00f3n \u00de\u00f3r\u00f0arson, fyrrverandi al\u00feingisma\u00f0ur og r\u00e1\u00f0herra, l\u00e9st \u00ed g\u00e6r. Hann var \u00e1 87. aldurs\u00e1ri.<\/em><\/p>\n<p><em>Fri\u00f0j\u00f3n \u00de\u00f3r\u00f0arson f\u00e6ddist \u00e1 Brei\u00f0ab\u00f3lsta\u00f0 \u00e1 Fellsstr\u00f6nd 5. febr\u00faar 1923. Foreldrar hans voru hj\u00f3nin \u00de\u00f3r\u00f0ur Kristj\u00e1nsson, b\u00f3ndi og hreppstj\u00f3ri \u00fear, og Steinunn \u00deorgilsd\u00f3ttir kennari. Fri\u00f0j\u00f3n gekk \u00ed Menntask\u00f3lann \u00ed Reykjav\u00edk og lauk \u00fea\u00f0an st\u00fadentspr\u00f3fi 1941. Lag\u00f0i hann s\u00ed\u00f0an stund \u00e1 l\u00f6gfr\u00e6\u00f0i \u00ed H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands og lauk \u00fea\u00f0an emb\u00e6ttispr\u00f3fi \u00ed \u00feeirri grein 1947. Hann \u00f6\u00f0la\u00f0ist r\u00e9ttindi h\u00e9ra\u00f0sd\u00f3msl\u00f6gmanns 1948 og h\u00e6star\u00e9ttarl\u00f6gmanns 1991. Veturinn 1949 til 1950 var hann \u00ed n\u00e1ms- og kynnisdv\u00f6l vi\u00f0 a\u00f0alst\u00f6\u00f0var Sameinu\u00f0u \u00fej\u00f3\u00f0anna \u00ed New York og vi\u00f0 r\u00edkisl\u00f6greglusk\u00f3lann \u00ed New Haven, Connecticut, Bandar\u00edkjunum.<\/em><\/p>\n<p><em>A\u00f0 loknu lagapr\u00f3fi var\u00f0 Fri\u00f0j\u00f3n \u00de\u00f3r\u00f0arson fulltr\u00fai borgard\u00f3marans \u00ed Reykjav\u00edk og s\u00ed\u00f0ar l\u00f6greglustj\u00f3rans \u00ed Reykjav\u00edk \u00e1 \u00e1runum 1947-1955, og var \u00fe\u00e1 oft settur l\u00f6greglustj\u00f3ri um skamman t\u00edma. Hann var settur b\u00e6jarf\u00f3geti um t\u00edma b\u00e6\u00f0i \u00e1 Akranesi og s\u00ed\u00f0ar \u00e1 Siglufir\u00f0i, en var skipa\u00f0ur s\u00fdsluma\u00f0ur \u00ed heimah\u00e9ra\u00f0i s\u00ednu, Dalas\u00fdslu, 1955 og gegndi \u00fev\u00ed starfi til 1965, var\u00f0 s\u00fdsluma\u00f0ur \u00fear \u00e1 n\u00fd 1991-1993. \u00c1ri\u00f0 1965 flutti hann sig um set og var\u00f0 s\u00fdsluma\u00f0ur \u00ed Sn\u00e6fellsnes- og Hnappadalss\u00fdslu um 10 \u00e1ra skei\u00f0.<\/em><\/p>\n<p><em>Fri\u00f0j\u00f3n \u00de\u00f3r\u00f0arson gegndi fj\u00f6lm\u00f6rgum tr\u00fana\u00f0arst\u00f6rfum \u00ed h\u00e9ra\u00f0i og \u00e1 landsv\u00edsu. Hann var stj\u00f3rnarforma\u00f0ur Sparisj\u00f3\u00f0s Dalas\u00fdslu hin fyrri s\u00fdslumanns\u00e1r s\u00edn \u00fear, sat \u00ed bankar\u00e1\u00f0i B\u00fana\u00f0arbanka \u00cdslands 1960-1993, forma\u00f0ur \u00feess 1969-1972. Hann sat lengi \u00ed stj\u00f3rnum Sementsverksmi\u00f0ju r\u00edkisins, Brunab\u00f3taf\u00e9lags \u00cdslands og s\u00ed\u00f0ar V\u00e1tryggingaf\u00e9lags \u00cdslands. \u00de\u00e1 sat hann \u00ed hreppsnefnd Stykkish\u00f3lmshrepps 1966-1970.<\/em><\/p>\n<p><em>Fri\u00f0j\u00f3n \u00de\u00f3r\u00f0arson var fyrst \u00ed frambo\u00f0i fyrir Sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0isflokkinn \u00ed Dalas\u00fdslu vi\u00f0 kosningarnar 1953, \u00fer\u00edtugur a\u00f0 aldri, og \u00e1 n\u00fd \u00ed al\u00feingiskosningunum 1956. \u00de\u00e1 hlaut hann s\u00e6ti sem 11. landskj\u00f6rinn \u00feingma\u00f0ur og sat til vors 1959. \u00cd kosningunum 1959 og 1963 var hann ofarlega \u00e1 lista Sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0isflokksins \u00ed Vesturlandskj\u00f6rd\u00e6mi og sat um t\u00edma sem varama\u00f0ur \u00e1 Al\u00feingi 1962. Hann var s\u00ed\u00f0ar kj\u00f6rinn al\u00feingisma\u00f0ur Vesturlandskj\u00f6rd\u00e6mis 1967 og sat samfleytt til vors 1991. Alls sat Fri\u00f0j\u00f3n \u00e1 30 \u00feingum.<\/em><\/p>\n<p><em>\u00cd hinni s\u00f6gulegu stj\u00f3rnarmyndun Gunnars Thoroddsens \u00ed febr\u00faar 1980 var\u00f0 Fri\u00f0j\u00f3n \u00de\u00f3r\u00f0arson d\u00f3ms- og kirkjum\u00e1lar\u00e1\u00f0herra og jafnframt samstarfsr\u00e1\u00f0herra um norr\u00e6n m\u00e1lefni. Gegndi hann r\u00e1\u00f0herrast\u00f6rfum til 26. ma\u00ed 1983.<\/em><\/p>\n<p><em>\u00c1 Al\u00feingi \u00e1tti Fri\u00f0j\u00f3n lengi s\u00e6ti \u00ed fj\u00e1rveitinganefnd. Hann gegndi varaforsetast\u00f6rfum \u00ed sameinu\u00f0u Al\u00feingi \u00e1rin 1973-1979. Hann var virkur \u00ed al\u00fej\u00f3\u00f0legu samstarfi Al\u00feingis, m.a. \u00ed \u00feingmannasamt\u00f6kum NATO, Evr\u00f3pur\u00e1\u00f0sins, EFTA og Vestnorr\u00e6na r\u00e1\u00f0inu.<\/em><\/p>\n<p><em>Fri\u00f0j\u00f3n \u00de\u00f3r\u00f0arson \u00e1tti sterkar r\u00e6tur \u00ed Dalas\u00fdslu og \u00e1 Vesturlandi og \u00feeim h\u00e9ru\u00f0um helga\u00f0i hann krafta s\u00edna lengi. Hann var\u00f0 \u00e1 ungum aldri s\u00fdsluma\u00f0ur \u00fear og al\u00feingisma\u00f0ur, og jafnframt forustuma\u00f0ur \u00ed f\u00e9lagsm\u00e1lum. Naut hann \u00fear vins\u00e6lda sinna, b\u00e6\u00f0i \u00ed h\u00e9ra\u00f0i og \u00e1 landsv\u00edsu, en \u00fej\u00f3\u00f0\u00feekktur var\u00f0 hann me\u00f0 kvartettinum Leikbr\u00e6\u00f0rum \u00e1 sj\u00f6tta \u00e1ratug s\u00ed\u00f0ustu aldar. Haf\u00f0i hann g\u00f3\u00f0a s\u00f6ngr\u00f6dd og s\u00f6ng me\u00f0 eldri f\u00e9l\u00f6gum Karlak\u00f3rs Reykjav\u00edkur fram \u00e1 s\u00ed\u00f0ustu \u00e1r. Auk \u00feessa var Fri\u00f0j\u00f3n fimur vi\u00f0 v\u00edsna- og lj\u00f3\u00f0ager\u00f0. \u00cd starfi s\u00ednu var\u00f0 hann fj\u00f6lfr\u00f3\u00f0ur um f\u00f3lk og s\u00f6gu svo a\u00f0 me\u00f0 afbrig\u00f0um var. S\u00fdndi hann s\u00ednu f\u00f3lki mikla r\u00e6ktarsemi, rita\u00f0i um s\u00f6gu Brei\u00f0afjar\u00f0ar og st\u00f3\u00f0 fyrir margv\u00edslegri menningarstarfsemi \u00ed h\u00e9ra\u00f0i, ekki s\u00edst \u00e1 Eir\u00edksst\u00f6\u00f0um \u00ed Haukadal. Hann \u00e1tti s\u00e6ti \u00ed stj\u00f3rn Hollvinasamtaka Dalamanna.<\/em><\/p>\n<p><em>Fri\u00f0j\u00f3n \u00de\u00f3r\u00f0arson \u00e1tti traustu fylgi a\u00f0 fagna \u00e1 \u00feingmannsferli s\u00ednum. Hann var fylginn s\u00e9r, en jafnan pr\u00fa\u00f0ur \u00ed m\u00e1lafylgjunni. Er hann hvarf af \u00feingi \u00e1tti hann nokkur g\u00f3\u00f0 starfs\u00e1r \u00ed B\u00fa\u00f0ardal og h\u00e9lt \u00f3trau\u00f0ur \u00e1fram a\u00f0 efla hag s\u00fdslunga sinna og Vestlendinga allra og dr\u00f3 hvergi af s\u00e9r \u00fe\u00f3tt aldurinn f\u00e6r\u00f0ist yfir hann. \u00c1 \u00fev\u00ed svi\u00f0i skila\u00f0i hann miklu verki. S\u00ed\u00f0ustu vi\u00f0fangsefni hans voru safn um Leif Eir\u00edksson og um Sturlu sagnritara \u00de\u00f3r\u00f0arson.<\/em><\/p>\n<p><em>\u00c9g bi\u00f0 \u00feingheim a\u00f0 minnast Fri\u00f0j\u00f3ns \u00de\u00f3r\u00f0arsonar me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 r\u00edsa \u00far s\u00e6tum.<\/em><\/p>\n<p><strong>\u00c1grip um Fri\u00f0j\u00f3n:<\/strong><\/p>\n<p>F. \u00e1 Brei\u00f0ab\u00f3lsta\u00f0 \u00e1 Fellsstr\u00f6nd 5. febr. 1923, d. 14. des. 2009. For.: \u00de\u00f3r\u00f0ur Kristj\u00e1nsson (f. 26. mars 1890, d. 19. ma\u00ed 1967) b\u00f3ndi og hreppstj\u00f3ri \u00fear, br\u00f3\u00f0ir Salome \u00f6mmu Svavars Gestssonar al\u00fem., og k. h. Steinunn \u00deorgilsd\u00f3ttir (f. 12. j\u00fan\u00ed 1892, d. 4. okt. 1984) kennari. Fa\u00f0ir Sigur\u00f0ar R\u00fanars v\u00fem., tengdafa\u00f0ir \u00c1rna M. Mathiesens al\u00fem. K. 1. (28. okt. 1950) Krist\u00edn Sigur\u00f0ard\u00f3ttir (f. 30. des. 1928, d. 19. ma\u00ed 1989) h\u00fasm\u00f3\u00f0ir. For.: Sigur\u00f0ur L\u00fd\u00f0sson og k. h. Gu\u00f0r\u00fan B\u00e1r\u00f0ard\u00f3ttir. K. 2. (29. j\u00fan\u00ed 1992) Gu\u00f0laug Gu\u00f0mundsd\u00f3ttir (f. 14. \u00e1g\u00fast 1936) h\u00fasm\u00f3\u00f0ir. For.: Gu\u00f0mundur Halld\u00f3r \u00deorl\u00e1ksson og k. h. Ingunn Sigr\u00ed\u00f0ur T\u00f3masd\u00f3ttir. B\u00f6rn Fri\u00f0j\u00f3ns og Krist\u00ednar: Sigur\u00f0ur R\u00fanar (1950), \u00de\u00f3r\u00f0ur (1952), Helgi \u00deorgils (1953), L\u00fd\u00f0ur \u00c1rni (1956), Steinunn Krist\u00edn (1960).<br \/>\nSt\u00fadentspr\u00f3f MR 1941. L\u00f6gfr\u00e6\u00f0ipr\u00f3f H\u00cd 1947. Hdl. 1948. Hrl. 1991. N\u00e1ms- og kynnisdv\u00f6l vi\u00f0 a\u00f0alst\u00f6\u00f0var Sameinu\u00f0u \u00fej\u00f3\u00f0anna \u00ed New York sept.\u2014des. 1949 og vi\u00f0 State Police Academy \u00ed New Haven, Connecticut, Bandar\u00edkjunum febr.\u2014j\u00fan\u00ed 1950.<\/p>\n<p>H\u00f3f st\u00f6rf hj\u00e1 Ragnari J\u00f3nssyni h\u00e6star\u00e9ttarl\u00f6gmanni a\u00f0 loknu pr\u00f3fi. Settur b\u00e6jarf\u00f3geti \u00e1 Akranesi \u00e1g\u00fastm\u00e1nu\u00f0 1947. Fulltr\u00fai borgard\u00f3marans \u00ed Reykjav\u00edk 1947\u20141948. Fulltr\u00fai l\u00f6greglustj\u00f3rans \u00ed Reykjav\u00edk 1948\u20141949, 1950\u20141951 og 1952\u20141955. Oft settur l\u00f6greglustj\u00f3ri \u00ed Reykjav\u00edk 1948\u20141955. Settur b\u00e6jarf\u00f3geti \u00e1 Siglufir\u00f0i 1951\u20141952. S\u00fdsluma\u00f0ur \u00ed Dalas\u00fdslu 1955\u20141965 og 1991\u20141993. S\u00fdsluma\u00f0ur \u00ed Sn\u00e6fellsnes- og Hnappadalss\u00fdslu 1965\u20141975. Skip. 8. febr. 1980 d\u00f3ms- og kirkjum\u00e1lar\u00e1\u00f0herra og samstarfsr\u00e1\u00f0herra um norr\u00e6n m\u00e1lefni, lausn 28. apr\u00edl 1983, en gegndi st\u00f6rfum til 26. ma\u00ed.Stj\u00f3rnarforma\u00f0ur Sparisj\u00f3\u00f0s Dalas\u00fdslu 1956\u20141965. \u00cd bankar\u00e1\u00f0i B\u00fana\u00f0arbanka \u00cdslands 1960\u20141993, forma\u00f0ur 1969\u20141972. \u00cd hreppsnefnd Stykkish\u00f3lmshrepps 1966\u20141970. Sat \u00e1 Allsherjar\u00feingi Sameinu\u00f0u \u00fej\u00f3\u00f0anna 1966, 1985, 1987 og 1990. Fulltr\u00fai \u00cdslands \u00ed \u00deingmannasamt\u00f6kum Nor\u00f0ur-Atlantshafsr\u00edkjanna 1967\u20141974 og 1976, forma\u00f0ur \u00edslensku sendinefndarinnar 1968\u20141971. Fulltr\u00fai \u00cdslands \u00e1 \u00feingi Evr\u00f3pur\u00e1\u00f0sins 1974. Fulltr\u00fai \u00cdslands \u00e1 fundum \u00feingmannanefndar EFTA 1975, 1977 og 1988. \u00cd stj\u00f3rn Sementsverksmi\u00f0ju r\u00edkisins 1977\u20141993. \u00cd stj\u00f3rn Brunab\u00f3taf\u00e9lags \u00cdslands fr\u00e1 1979, forma\u00f0ur 1987, og V\u00e1tryggingaf\u00e9lags \u00cdslands s\u00ed\u00f0an 1989. \u00cd \u00cdslandsdeild Nor\u00f0urlandar\u00e1\u00f0s 1983\u20141987 og sat auka\u00feing r\u00e1\u00f0sins 1988. \u00cd Vestnorr\u00e6na \u00feingmannar\u00e1\u00f0inu 1985 og 1987\u20141989, forma\u00f0ur.<\/p>\n<p>Landsk. al\u00fem. (Dal.) 1956\u20141959, al\u00fem. Vesturl. 1967\u20141991 (Sj\u00e1lfstfl.).<br \/>\nV\u00fem. Vesturl. mars 1962.<br \/>\nD\u00f3ms- og kirkjum\u00e1lar\u00e1\u00f0herra og samstarfsr\u00e1\u00f0herra um norr\u00e6n m\u00e1lefni 1980\u20141983.<br \/>\n1. varaforseti S\u00fe. 1973\u20141974 og 1978\u20141979, 2. varaforseti S\u00fe. 1974\u20141978 og 1979.<\/p>\n<p><em>Heimild: Al\u00feingi.is<\/em><\/p>\n<p><a href=\"https:\/\/vefsafn.is\/20210618145245mp_\/http:\/\/budardalur.vinnsla.com\/wp-content\/uploads\/2015\/12\/joomla_logo_black-196x108.png\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" src=\"https:\/\/vefsafn.is\/20210618145245im_\/http:\/\/budardalur.vinnsla.com\/wp-content\/uploads\/2015\/12\/joomla_logo_black-196x108.png\" alt=\"joomla_logo_black-196x108\" width=\"196\" height=\"108\"\/><\/a>Eins og gefur a\u00f0 skilja hefur vefmi\u00f0ill l\u00edkt og B\u00fa\u00f0ardalur.is ekki \u00far miklu a\u00f0 spila fj\u00e1rhagslega og mannskapslega og h\u00f6fum vi\u00f0 \u00ed gegnum \u00e1rin keyrt \u00feetta \u00e1fram \u00e1 \u00e1huganum einum saman. Vi\u00f0 h\u00f6fum \u00fe\u00f3 fengi\u00f0 einn styrk fr\u00e1 Menningarsj\u00f3\u00f0i Vesturlands og Menninga og framfaraslj\u00f3\u00f0i Dalas\u00fdslu og er \u00fea\u00f0 vel.<\/p>\n<p>Hafir \u00fe\u00fa einhvern m\u00f6guleika \u00e1 a\u00f0 styrkja okkur e\u00f0a hefur \u00e1huga \u00e1 a\u00f0 skrifa, leggja til efni e\u00f0a benda okkur \u00e1 efnist\u00f6k \u00fe\u00e1 \u00f3skum vi\u00f0 einl\u00e6glega eftir a\u00f0sto\u00f0 \u00feinni.<\/p>\n<p><a href=\"#\"><\/p>\n<p><strong>Bankauppl\u00fdsingar:<\/strong><br \/>\nB\u00fa\u00f0ardalur.is<br \/>\n<em>kt.570914-0650<\/em><br \/>\n<em>Reikningur: 0312-26-4000<\/em><\/p>\n<p>Netfang: budardalur@budardalur.is<\/p>\n<p><\/a><\/p>\n<p><a href=\"https:\/\/vefsafn.is\/20210619084308mp_\/http:\/\/budardalur.is\/um-vefinn\/\">Upprunaleg s\u00ed\u00f0a \u00ed Vefsafni<\/a><\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Efni af eldri \u00fatg\u00e1fu B\u00fa\u00f0ardalur.is, var\u00f0veitt \u00ed Vefsafni. L\u00fdsingar \u00e1 \u00fej\u00f3nustu og tengili\u00f0um eiga vi\u00f0 \u00feann t\u00edma. \u00cd einni setningu m\u00e1 segja a\u00f0 markmi\u00f0 \u00feessarar vefs\u00ed\u00f0u s\u00e9\u00a0a\u00f0 stu\u00f0la a\u00f0 var\u00f0veislu menningartengdra heimilda \u00far Dalabygg\u00f0 \u00ed v\u00ed\u00f0ustu merkingu. \u00dea\u00f0 var s\u00ed\u00f0la \u00e1rs \u00e1ri\u00f0 2010 a\u00f0 Sigur\u00f0ur Sigurbj\u00f6rnsson keypti l\u00e9ni\u00f0 B\u00fa\u00f0ardalur.is \u00ed \u00feeim tilgangi a\u00f0 safna undirskriftum [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","template":"","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-4000","page","type-page","status-publish","hentry"],"blocksy_meta":{"styles_descriptor":{"styles":{"desktop":"","tablet":"","mobile":""},"google_fonts":[],"version":8}},"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/budardalur.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/4000","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/budardalur.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/budardalur.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/budardalur.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/budardalur.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=4000"}],"version-history":[{"count":1,"href":"https:\/\/budardalur.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/4000\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":4005,"href":"https:\/\/budardalur.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/4000\/revisions\/4005"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/budardalur.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=4000"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}