Búðardalur.is
Menningarmiðja Dalanna
Búðardalur.is
Menningarmiðja Dalanna

Gamla skólahúsið á Staðarfelli á Fellsströnd sem áður var húsmæðraskóli hefur verið auglýst til sölu. Eigandi hússins er Ríkiskaup en meðferðarstöð SÁÁ hefur verið starfrækt í húsinu allt frá árinu 1980 þar til fyrr á þessu ári þegar öll starfsemi SÁÁ fluttist þaðan á meðferðarheimilið Vík á Kjalarnesi.
Ásamt gamla skólahúsinu hafa fleiri hús í eigu ríkisins sem tengdust rekstri SÁÁ einnig verið auglýst til sölu og er óskað eftir tilboðum í allar eignirnar sem eru fimm talsins en samanlagður grunnflötur þeirra er um 1.300 fermetrar.

Upprunalegur höfundur: Sigurður Sigurbjörnsson. Varðveitt upprunaleg grein