Búðardalur.is
Menningarmiðja Dalanna
Búðardalur.is
Menningarmiðja Dalanna
118 myndbönd frá Búðardalur.is: viðtöl, viðburðir, daglegt líf og þorrablót. Titlar og lýsingar eru sótt af YouTube. Röðin miðast við birtingardag á YouTube; upptökuár getur verið eldra.
118 myndbönd

Þau Guðmundur Pálsson og Hrafnhildur Halldórsdóttir dagskrárgerðarfólk í síðdegisútvarpi á Rás 2 fjölluðu í dag um frétt sem birtist á Búðardalur.is. Fréttin fjallar um lambhrút sem kom í heiminn þann 21.mars 2020.
Horfa á YouTube
Í þessari frétt RÚV frá árinu 1995 er meðal annars rætt við Hermann heitinn Bjarnason bónda á Leiðólfsstöðum í Laxárdal þar sem hann er spurður út í vegaframkvæmdir við Klofasteina í landi Ljárskóga. Búðardalur.is þakkar Brynjólfi Gunnarssyni í Búðardal fyrir að útvega þetta myndband.
Horfa á YouTube
Rithöfundurinn Eva Rún Þorgeirsdóttir er að gefa út bókina Stúfur hættir að vera jólasveinn. Höfundurinn er Eva Rún Þorgeirsdóttir og hefur getið sér gott orð sem rithöfundur á undanförnum árum auk þess að hafa unnið við framleiðlu sjónvarpsefnis ofl.
Horfa á YouTube
Réttað var í Gillastaðarétt í Laxárdal í Dalabyggð sunnudaginn 16.september 2018. Þetta drónamyndband var tekið af því tilefni.
Horfa á YouTube
Í tilefni 90 ára afmælis hestamannafélagsins Glaðs var efnt til hátíðarmessu í Hjarðarholtskirkju í dag. Athöfnin var sniðin að tilefni dagsins og var með hressilegu yfirbragði. Halldór Þorgils Þórðarson leiddi söng ásamt kirkjukór Dalaprestakalls og Gissur Páll Gissurarson stórtenór söng einsöng. Félagsmenn í hestamannafélaginu Glað komu ríðandi fánareið til messu frá hesthúsahverfinu í Búðardal í blíðskaparveðri. Að messu lokinni var boðið uppá kaffi í safnaðarheimili Hjarðarholtskirkju. Á meðfylgjandi myndbandi má sjá þegar félagsmenn Glaðs komu ríðandi í Hjarðarholt.
Horfa á YouTube
Eins og fram kom á Búðardalur.is um miðjan júlí í viðtali við Ólaf Kr.Guðmundsson umferðaröryggssérfræðing, fór hann ferð um Dali síðari hluta júlí og tók út vegakerfið þar og einnig tók hann út aðra vegi á Vesturlandi að beiðni sveitarfélagana á svæðinu. Nú hefur Ólafur lokið ferð sinni um flesta vegi Dalanna, en þó ekki alla, og tókum við Ólaf aftur tali þegar hann kom úr ferð sinni og spurðum við hann hver niðurstaða hans og upplifun væri um vegagerfið í Dölum eftir ferðina.
Horfa á YouTube
Engin lýsing fylgir myndbandinu á YouTube.
Horfa á YouTube
Við ræddum við Ólaf Guðmundsson sérfræðing í umferðaröryggismálum en hann var að búa sig af stað til að mynda og taka út öryggi vega í Dölum sem og víðar á Vesturlandi
Horfa á YouTube
Föstudaginn fyrir kosningar þann 25.maí síðastliðinn hittum við á Sigurð Inga Jóhannsson samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra í höfuðstöðvum Framsóknarflokksins í Reykjavík þar sem hann kom við á ferðalagi sínu um landið í undanfara sveitarstjórnarkosninga og við ræddum við hann um samgöngumál og Dalina.
Horfa á YouTube
Þessi rebbi kíkti í heimsókn á Vígholtsstöðum í Dalabyggð á kosningakvöldi 26.maí 2018
Horfa á YouTube
Ívar Atli Brynjólfsson sýnir hér nýjan Scania sjónvarpsskenk sem hann og Jón Bragi vinur hans gerðu í sameiningu
Horfa á YouTube
Þessi 2 ára krummi sem fékk nýtt heimili að Hólum í Hvammssveit í Dölum er ótrúlegur. Hann talar við Rebeccu bónda í Hólum og virðist segja "mamma" og margt fleira. Sjón og heyrn er sögu ríkari. Krummi fer rólega af stað en þegar liðnar eru um 3 mínútur af myndbandinu byrjar krummi að tala.
Horfa á YouTube
Fyrsta jarm frá lambi ársins 2018 er frá þessum flekkótta hrút frá Spágilsstöðum í Dalabyggð sem kom í heiminn þann 14.mars 2018.
Horfa á YouTube
Engin lýsing fylgir myndbandinu á YouTube.
Horfa á YouTube
Engin lýsing fylgir myndbandinu á YouTube.
Horfa á YouTube
Engin lýsing fylgir myndbandinu á YouTube.
Horfa á YouTube
Forseti Íslands afhjúpar minnismerki við Kvennabrekku í Dölum í opinberri heimsókn sinni um Dalabyggð dagana 6.-7.desember 2017 Þorgrímur Einar Guðbjartsson aðstoðaði forsetann við afhjúpunina. Þá má sjá ávarp Svavars Gestssonar fyrrverandi ráðherra og viðtal Þorgeirs Ástvaldssonar við Svavar af þessu tilefni.
Horfa á YouTube
Engin lýsing fylgir myndbandinu á YouTube.
Horfa á YouTube
Á fallegum degi í ágúst árið 2014 hittum við fyrir í Leifsbúð, Jóhann Sæmundsson frá Ási í Dölum. Jóhann er um margt merkilegur maður og er meðal annars síðasti landpóstur í Dölum og þó víðar væri leitað. Jóhann var landpóstur í Dalasýslu frá árunum 1956 til ársins 1965 þegar fyrirkomulagi póstdreifingar var breytt og farið var að senda póstinn með mjólkurbílum. Á þessum árum bjó Jóhann á Neðri-Brunná og Efri-Múla í Saurbæ. Árið 1965 þegar bankaútibú Búnaðarbankans í Búðardal var stofnað hóf Jóhann störf þar sem gjaldkeri og starfaði þar í 30 ár. Jóhann og eiginkona hans Jarþrúður Kristjánsdóttir bjuggu í Ási frá árinu 1968 en búa í dag í Búðardal. Þetta og meira fróðlegt og skemmtilegt má sjá og heyra í viðtalinu hér sem Þorgeir Ástvaldsson tók við Jóhann í ágúst 2014.
Horfa á YouTube
Meðfylgjandi drónamyndir eru teknar í Gillastaðarétt í Laxárdal í Dalabyggð sunnudaginn 17.september 2017
Horfa á YouTube
Hér er á ferðinni viðtal við Ríkarð Jóhannsson frá Gröf í Laxárdal í Dölum. Ríkarður er vel þekktur í Dölum sem og víðar fyrir snilli sína á saxófón og trommur með Harmonikufélaginu Nikkólínu í Dölum svo eitthvað sé nefnt. Ríkarður eða Rikki í Gröf eins og hann er alla jafna kallaður er 91 árs nú árið 2017 en þetta viðtal var tekið við hann sumarið 2014.
Horfa á YouTube
Engin lýsing fylgir myndbandinu á YouTube.
Horfa á YouTube
Þetta myndskeið er af sinueldi í landi Ketilsstaða í Hvammssveit í Dölum föstudaginn langa 14.apríl 2017. Myndskeið: Búðardalur.is
Horfa á YouTube
Myndskeiðið sýnir vöruflutningabifreið á leið gegnum Búðardal mánudagskvöldið 20.mars 2017. Þegar vörubifreiðinni er ekið framhjá verslun Samkaupa er henni ekið á röngum vegarhelmingi framhjá hraðatakmörkun sem sett var upp nýverið. Myndskeiðið tók Katrín Lilja Ólafsdóttir.
Horfa á YouTube
New year´s eve in Reykjavík Iceland 2016/2017. Recorded with drone from 23:50 2016 to 00:10 2017. Enjoy and welcome to Iceland.
Horfa á YouTube
Myndband tekið upp í Kópavogi rétt fyrir miðnætti á gamlársdag 31.desember 2016
Horfa á YouTube
Bílbruni varð skammt fyrir utan Búðardal nú á aðventunni. Harpa Helgadóttir missti þar bifreið sína en engan sakaði. Slökkvilið Dalabyggðar kom til aðstoðar og slökkti eldinn í bifreiðinni.
Horfa á YouTube
Hér ræðir Þorgeir Ástvaldsson við Harald Benediktsson alþingismann um ljósleiðaravæðingu á Íslandi og hvar Dalirnir standa í þeirri umræðu. – 8.janúar 2015.
Horfa á YouTube
2.mars 2015) Búnaðarþing 2015 hófst um liðna helgi en kjörorð þingsins í ár er "Opinn landbúnaður". Um helgina gafst almenningi kostur á að heimsækja fjölda bóndabæja í Hörpu og kynna sér þau störf sem unnin eru í sveitum landsins. Landbúnaður er ein mikilvægasta grein sem stunduð er á Íslandi og er undirstaða matvælaframleiðslu. Í yfirlýsingu bænda á vef Bændablaðsins kemur fram að landsmenn allir eigi landbúnaðinn saman og þess vegna eigi hann að vera aðgengilegur öllum, bændur hafi ekkert að fela. Ein af þeim fjölmörgu sem kynntu starfsemi sína og framleiðslu í Hörpu um liðna helgi voru hjónin Þorgrímur Einar Guðbjartsson og Helga Elínborg Guðmundsdóttir á rjómabúinu Erpsstöðum í Dölum. Við stöldruðum við í básnum hjá Þorgrími og áttum við hann stutt spjall.
Horfa á YouTube
Að þessu sinni heimsækjum við Inga Einar Sigurðsson sem er borinn og barnfæddur Dalamaður frá Vogi á Fellsströnd. Ingi Einar er faðir þriggja drengja sem hann á með Lilju Björk Birkisdóttur. Síðustu 12 árin hefur Ingi starfað hjá fyrirtækinu Nóa Síríus þar sem hann er sölustjóri.
Horfa á YouTube
Flytjandi: Guðrún Gunnarsdóttir. Lag: Þorgeir Ástvaldsson. Texti: Helga S. Þorgilsdóttir
Horfa á YouTube
Myndband sem Rebecca Ostenfeld tók af óveðrinu þann 10.12.2014
Horfa á YouTube
Haustið er skollið á af öllum sínum þunga og þá taka við öll þau verkefni sem því tengist. Bændur um land allt halda nú til fjalla í leit að sauðfé sínu sem dvalið hefur í góðu yfirlæti á fjöllum í sumar. Réttað var á þremur stöðum í Dölum í dag, í Tungurétt á Fellsströnd, Kirkjufellsrétt í Haukadal og í Ljárskógarétt í Laxárdal en meðfylgjandi myndband var einmitt tekið upp í Ljárskógarétt í dag.
Horfa á YouTube
Í smáum samfélögum í dreifðum byggðum landsins gegna einstaklingar oft mörgum hlutverkum og er það hið eðlilegasta mál. Dalabyggð er eitt af þessum smáu samfélögum en þar eru margir einstaklingar sem gegna mörgum hlutverkum í dagsins önn. Einn af þessum virku einstaklingum í Dalabyggð er Skjöldur Orri Skjaldarson kennari við Auðarskóla. Fyrir utan það að kenna við Auðarskóla er Skjöldur sjúkraflutningamaður, héraðslögreglumaður, hestamaður, söngvari og leikari svo eitthvað sé týnt til. Skjöldur er fæddur þann 9.september 1974 og er hann því fertugur í dag.Skjöldur er fjölskyldumaður en hann er giftur Carolin Baare Schmidt frá Þýskalandi og eiga þau saman fjögur börn. Við hittum Skjöld nú á dögunum og spjölluðum meðal annars við hann um þau störf sem hann sinnir hér í Dölum. Við hjá Búðardalur.is óskum Skildi Orra innilega til hamingju með fertugsafmælið.
Horfa á YouTube
Hér er stutt myndband frá bæjarhátíðinni "Heim í Búðardal" 2014.
Horfa á YouTube
Skólaslit Auðarskóla í Búðardal fóru fram miðvikudaginn 28.maí síðastliðinn en þann dag brugðu allir nemendur og kennarar á leik og gerðu sér glaðan dag. Búin var til vatnsrennibraut með sápu neðan við leiksvæði skólanns þar sem nemendur renndu sér niður sápubrekku með miklum tilþrifum. Sumum varð nokkuð kalt í fyrstu en það gleymdist fljótt í hita leiksins. Síðan að því loknu fór fram vítaspyrnukeppni milli kennara og 10.bekkinga. Eins og sést á meðfylgjandi ljósmynd og í myndbandinu hér fyrir neðan fékk Eyjófur skólastjóri heldur kalda kveðju frá einum nemanda skólanns. Þegar Eyjólfur var spurður að því skömmu eftir vatnsgusuna hver hefði skvett yfir hann vatni sagði Eyjólfur nafn nemandanns og sagði hann að um frábærann einstakling væri að ræða. Það var því ljóst frá fyrstu stundu að ekki risti það djúpt þó svo að þessi afburða nemandi hefði gert skólastjóra sínum þennan grikk. Að lokinni vítaspyrnukeppni var grillað ofan í svanga maga og gerði Ármann Rúnar Sigurðsson eigandi fyrirtækisins Árbrúnar ehf og fulltrúi í foreldrafélagi Auðarskóla sér lítið fyrir og grillaði ofan í mannskapinn hamborgara og pylsur. Síðan héldu nemendur til síns heima en mættu aftur klukkan 17:00 Í Dalabúð á skólaslit. Þar spiluðu nokkrir nemendur tónlist og Eyjólfur Sturlaugsson skólastjóri hélt ræðu. Að því loknu var nemendum afhnentur vitnisburður þeirra eftir veturinn og afburðanemendur fengu verðlaun.
Horfa á YouTube
17.júní 2014 var haldin hátíðlegur í Búðardal að venju en safnast var saman við Dvalarheimilið Silfurtún klukkan 14:00 og þaðan fór skrúðganga niður að Leifsbúð. Þar flutti Sigurður Þórólfsson í Innri-Fagradal hátíðarræðu. Fjallkona að þessu sinni var Kristín Þórarinsdóttir bóndi í Hvítadal í Saurbæ. Skátarnir stýrðu leikjum fyrir börn og fullorðna og hægt var að kaupa sér kaffi og meðlæti í Leifsbúð. Að lokum var haldið maraþon bingó á efri hæð Leifsbúðar sem skátafélagið Stígandi stóð fyrir.
Horfa á YouTube
Laugardaginn 12.apríl 2014 var opnunarhátíð í Leifsbúð í Búðardal en það voru þær Valdís Gunnarsdóttir og Ásdís Kr.Melsted sem buðu til opnunarinnar en þær eru nýju rekstraraðilar Leifsbúðar. Þær Valdís og Ásdís tóku við rekstrinum af Skagfirðingnum Freyju Ólafsdóttur sem meðal annars hlaut titilinn Dalamaður ársins árið 2012 hér á Búðardalur.is.
Horfa á YouTube
Eins og greint hefur verið frá standa sjúkraflutningamenn í Búðardal fyrir söfnun á sjálfvirku hjartahnoðtæki sem nefnist Lúkas. Umrætt tæki kostar í innkaupum um tvær og hálfa milljón króna. Söfnunin er nýlega hafin en hún er gerð með aðstoð Lionsklúbbs Búðardals sem heldur utan um fjárframlög til söfnunarinnar. Það var svo í gær að kvenfélagskonur í Kvenfélaginu Fjólan í Miðdölum óskuðu eftir því að fá að hitta sjúkraflutningamenn í Búðardal í hádeginu í dag. Kvenfélagskonur mættu síðan á Heilsugæslustöðina klukkan tólf og afhentu þær fulltrúum sjúkraflutningamanna veglega peningagjöf til söfnunarinnar. Upphæðin sem Kvenfélagið Fjólan gaf er ein milljón og fimmhundruð þúsund krónur og er þetta stærsta einstaka peningagjöfin sem Fjólan hefur gefið frá upphafi. Sjúkraflutningamenn tóku brosandi við gjöfinni og vildu þeir koma á framfæri hér innilegu þakklæti til kvenfélagsins Fjólunnar og sögðust þeir orðlausir yfir þessari rausnarlegu gjöf.
Horfa á YouTube
Minkur sást á ferðinni í skurði rétt fyrir neðan leiksvæðið við Auðarskóla í gær. Minkurinn kom hoppandi eftir Borgarbraut í Búðardal og skellti sér svo ofan í umræddann skurð. Að sögn starfsmanna Sæfrosts sem staðsettir eru í gamla sláturhúsinu í Búðardal hefur ekki sést minkur þar í þónokkurn tíma. Hér er þó staðfesting á því að þessi óboðni gestur er á sveimi í Búðardal.
Horfa á YouTube
Mánudaginn 24.mars síðastliðinn fór fram íbúafundur að Hótel Vogi á Fellsströnd. Það var Trausti V.Bjarnason bóndi á Á í samstarfi við Guðmund Halldórsson eiganda Hótel Vogs sem boðuðu til fundarinns. Fundarefnið var samgöngumál, raforkumál og fjarskiptamál. Á fundinn mættu tæplega 100 manns en 93 aðilar skrifuðu nöfn sín í fundargerðarbók. Fundarstjóri var Þórólfur Halldórsson sýslumaður í Keflavík og fundarritari var Sigrún Halldórsdóttir. Meðal þeirra sem tóku til máls á fundinum voru Trausti V.Bjarnason frummælandi, Jónas Guðmundsson frá Rarik í Búðardal, Guðmundur Halldórsson hóteleigandi, Guðmundur Gunnarsson sérfræðingur í fjarskiptamálum, Magnús V.Jóhannsson frá Vegagerðinni, Sæmundur Kristjánsson frá Vegagerðinni, Björn Sverrisson frá Rarik, Haraldur Benediktsson alþingismaður, Einar K.Guðfinnsson alþingismaður og forseti Alþingis, Jóhanna María Sigmundsdóttir alþingismaður, Elsa Lára Arnardóttir alþingismaður, Jóhannes Haukur Hauksson oddviti sveitarstjórnar Dalabyggðar ásamt fleirum. Peningaleysi bar mikið á góma og var nefnt sem helsta ástæða þess að lítil von væri á miklum úrbótum í hagsmunamálum Dalasýslu í nánustu framtíð. Samgöngumál voru mikið rædd og kom meðal annars fram hjá Einari K.Guðfinnssyni alþingismanni að Dalasýsla hefði setið á hakanum í langan tíma hvað varðar fjármuni til vegagerðar. Hvað rafmagnsmálin varðar var rætt um að tryggja afhendingaröryggi með því að laga útsláttarkerfið, þannig að minni svæði yrði úti ef til rafmagnsleysis kæmi. Þá var einnig rætt um bagalegt ástand margra bænda sem ekki hefðu þriggja fasa rafmagn. Þá var rætt um varðandi fjarskiptamálin að margir dauðir punktar væru á svæðinu sem væri mjög bagalegt, meðal annars fyrir ferðafólk. Hér má sjá klippt myndskeið af fundinum sem gefur einhverja mynd af því hvað þar fór fram. Beðist er velvirðingar á lélegum mynd og hljóðgæðum inn á milli í myndskeiðinu en notast var við farsímaupptöku að hluta.
Horfa á YouTube
Dalaskáldið Jón Jónsson frá Ljárskógum var fæddur þann 28.mars árið 1914. Þann 28.mars 2014 næstkomandi verða því 100 ár frá fæðingu Jóns. Af því tilefni hefur Búðardalur.is í samstarfi við Hilmar B. Jónsson, son Jóns, efnt til uppákomu í félagsheimilinu Dalabúð í Búðardal laugardaginn 29.mars 2014
Horfa á YouTube
Engin lýsing fylgir myndbandinu á YouTube.
Horfa á YouTube
Hér má sjá leikskólabörn Auðarskóla syngja fyrir starfsfólk HVE á Heilsugæslunni í Búðardal á öskudaginn 5.mars 2014.
Horfa á YouTube
Viðtal þetta við Björn St. Guðmdundsson frá Reynikeldu fór fram sumarið 2014. VIðtalið var tekið á heimili Björns í Búðardal. Umsjón með viðtalinu hafði Henný Árnadóttir. Björn gaf út sína fyrstu ljóðabók á árinu 2013 og síðar var Björn valinn Dalamaður ársins 2013 af Búðardalur.is
Horfa á YouTube
Um þetta myndband skrifar Ásdís Kr.Melsted eftirfarandi: Textann á Jóhannes Haukur Hauksson. Lagahöfundur er Sveinn Pálsson. Söngvarinn er Jóhannes Haukur Jóhannesson og um undirspilið sér hljómsveitin Granít frá Vík í Mýrdal. Ljósmyndafyrirsætur eru ljóðskáldið sjálft og Sigurður Jakob Jónsson.
Horfa á YouTube
Við kíktum í heimsókn með myndavélina á opnun nýs verkstæðis í Búðardal. B.A. Einarsson ehf.
Horfa á YouTube
Dagur í lífi bæjartæknifræðingsins í Dalabyggðar – þorrablót Fellsstrendinga 2014
Horfa á YouTube
Engin lýsing fylgir myndbandinu á YouTube.
Horfa á YouTube
"Ég gerði bara aðeins mitt besta" – Þetta segir Dalamaður ársins 2013, Björn St. Guðmundsson frá Reynikeldu á Skarðsströnd. Ólíkt fyrirkomulaginu sem var á kosningu Dalamanns ársins fyrir árið 2012 var ákveðið að sérstök nefnd útnefndi Dalamann ársins að þessu sinni en það er Búðardalur.is sem stendur alfarið fyrir þessari útnefningu og framkvæmd hennar.Björn er fæddur árið 1939 á Reynikeldu á Skarðsströnd og ólst hann þar upp. Hann var í farskóla skamma hríð í sinni sveit, síðan einn vetur í Laugarnesskólanum í Reykjavík, lauk svo gagnfræðaprófi frá Héraðsskólanum á Laugarvatni 1955 og kennaraprófi frá KÍ 1973. Björn var bóndi á Reynikeldu 1957-1964 og verslunarstjóri við útibú Kaupfélags Stykkishólms í Skarðsstöð 1958-1963. Hann hóf kennslu sem farkennari á Skarðsströndinni 1959, varð síðar kennari og skólastjóri við Barnaskólann í Búðardal 1964-1969, kennari að Laugum í Sælingsdal og kennari í Grunnskólanum í Búðardal þar til hann lét af störfum 2005. Hann var einnig um tíma kennari við Tónlistarskólann í Búðardal og um skeið starfaði hann við Barnaskóla Húsavíkur. Björn lét snemma til sín taka í félags- og menningarmálum. Hann var formaður Ungmennafélags Vöku í Skarðshreppi 1954-1964, formaður Ungmennasambands Dalamanna í nokkur ár og ritari þess 1964-1968. Hann söng í kirkjukór frá unga aldri og var kórstjóri barnakóra um fimmtán ára skeið, formaður kirkjukórsins 1954-1964, formaður karlakórs og Söngfélagsins Vorboðans í Búðardal, einn af stofnendum Tónlistarskólans í Búðardal og sat í fyrstu skólanefnd hans. Frá barnæsku hefur hefur Björn verið listelskur. Hann hóf ungur hljóðfæraleik á dansleikjum í Dölum og nærsveitum. Ungur fór hann að semja vísur, ljóð og síðar smásögur. LJóð, lausavísur og smásögur hafa birst eftir hann í blöðum og tímaritum. Einnig hafa þessi verk verið gefin út á hljómdiskum. Sem dæmi má nefna hljómdiskinn Birtir af degi. Engu að síður liggur eftir Björn mikið magn af óútgefnu efni. Við óskum Birni innilega til hamingju með útnefninguna Dalamaður ársins 2013.
Horfa á YouTube
Engin lýsing fylgir myndbandinu á YouTube.
Horfa á YouTube
Engin lýsing fylgir myndbandinu á YouTube.
Horfa á YouTube
Engin lýsing fylgir myndbandinu á YouTube.
Horfa á YouTube
Árið 1963 til 1965 voru nokkrir piparsveinar af Suðurlandi á ferðalagi um Ísland á Dodge Weapon rútubifreið í eigu Guðmdunar Tyrfingssonar hópferðaleifishafa á Selfossi sem sat undir stýri í ferðinni. Piparsveinarnir lögðu meðal annars leið sína um Dali og komu við í Búðardal. Ekki vildi betur til en svo að í Búðardal ók Guðmundur ofan í holu og var sú hola heldur betur af stærri gerðinni. Af ummerkjum að dæma hafði verið unnið við gröft í skurði við umræddann vegarkafla sem hafði svo fyllst af vatni. Guðmundur áttaði sig ekki á dýpt holunnar og því fór sem fór. Einn af farþegunum í ferðinni, Guðmundur Lýðsson frá Selfossi hafði á þessum tíma nýverið fest kaup á 8 millimetra myndbandsupptökuvél sem hann hafði með sér í ferðina. Guðmundur nýtti sér auðvitað tækifærið og festi þetta litla ævintýri piparsveinana á filmu. Bílaáhugamenn hafa sjálfsagt áttað sig á því að rútubifreiðin sem hér um ræðir er Dodge Weapon árgerð 1953 og ber skráningarnúmerið X-718 og er fyrsta hópbifreið Guðmundar Tyrfingssonar. X-718 stendur öllu jafna við höfuðstöðvar fyrirtækisins við Suðurlandsveg á Selfossi en bifreiðin er einnig í aðalhlutverki í merki Guðmundar Tyrfingssonar ehf.
Horfa á YouTube
Árið 1963 til 1965 voru nokkrir piparsveinar af Suðurlandi á ferðalagi um Ísland á Dodge Weapon rútubifreið í eigu Guðmdunar Tyrfingssonar hópferðaleifishafa á Selfossi sem sat undir stýri í ferðinni. Piparsveinarnir lögðu meðal annars leið sína um Dali og komu við í Búðardal. Ekki vildi betur til en svo að í Búðardal ók Guðmundur ofan í holu og var sú hola heldur betur af stærri gerðinni. Af ummerkjum að dæma hafði verið unnið við gröft í skurði við umræddann vegarkafla sem hafði svo fyllst af vatni. Guðmundur áttaði sig ekki á dýpt holunnar og því fór sem fór. Einn af farþegunum í ferðinni, Guðmundur Lýðsson frá Selfossi hafði á þessum tíma nýverið fest kaup á 8 millimetra myndbandsupptökuvél sem hann hafði með sér í ferðina. Guðmundur nýtti sér auðvitað tækifærið og festi þetta litla ævintýri piparsveinana á filmu. Bílaáhugamenn hafa sjálfsagt áttað sig á því að rútubifreiðin sem hér um ræðir er Dodge Weapon árgerð 1953 og ber skráningarnúmerið X-718 og er fyrsta hópbifreið Guðmundar Tyrfingssonar. X-718 stendur öllu jafna við höfuðstöðvar fyrirtækisins við Suðurlandsveg á Selfossi en bifreiðin er einnig í aðalhlutverki í merki Guðmundar Tyrfingssonar ehf.
Horfa á YouTube
Engin lýsing fylgir myndbandinu á YouTube.
Horfa á YouTube
Engin lýsing fylgir myndbandinu á YouTube.
Horfa á YouTube
Engin lýsing fylgir myndbandinu á YouTube.
Horfa á YouTube
Engin lýsing fylgir myndbandinu á YouTube.
Horfa á YouTube
Engin lýsing fylgir myndbandinu á YouTube.
Horfa á YouTube
Hún er borinn og barnfædd í Búðardal,yngsta dóttir hjónanna Stulu Þórðarsonar og Þrúðar Kristjánsdóttur. Hún heitir Hanna Dóra og kynntist auðvitað hljómlistinni í heimabyggð og lærði þar um skeið á píanó og þverflautu. Með það dýrmæta vegarnesti flaug unginn úr hreiðrinu og fór til söngnáms í Reykjavík þar sem hún naut tilsagnar færustu söngvara á borð við Kristinn Sigmundsson og Snæbjörgu Snæbjarnar. Þaðan lá leið Hönnu Dóru til hins heimalandssins Þýskalands.Þar í landi á hún glæsilegan feril að baki um nokkurra ára skeið og er án efa ein allra besta óperusöngkona okkar í dag. Síðast liðið haust (2013) bauðst henni sá heiður að leika og syngja CARMEN í samnefndri óperu og skilaði því hlutverki með hreinum ágætum.Uppfærsla Íslensku óperunnar á þessu verki hlaut ágætisdóma.Við tókum Hönnu Dóru tali stuttu áður en hún fór á svið í síðustu sýningunni í Hörpu.
Horfa á YouTube
Myndband vegna þorrablóts Laxdæla fyrir árið 2014
Horfa á YouTube
Á meðan börn og og fullorðnir dönsuðu í kringum jólatréð á skemmtuninni í Búðardal í dag kom allt í einu stór og mikill blossi sem lýsti upp himininn í vestri. Eldingin náðist á myndband en hana má sjá hér. Þá hefur einnig frést af því að mikið hafi verið um eldingar í allt kvöld sem sést hafa vel, meðal annars í miðdölum.
Horfa á YouTube
14 dagar eru nú til jóla og var haldin jólatrésskemmtun í Búðardal í dag og ljósin kveikt á jólatrénu, en það stendur á lóðinni við Auðarskóla. Jólatréð er óvenju veglegt að þessu sinni en það kemur úr Borgarfirði og tók Sveinn Pálsson sveitarstjóri þannig til orða að jólatré Dalamanna væri örugglega tvisvar til þrisvar sinnum hærra heldur en jólatré Ólafsfirðinga. Eftir að kveikt hafði verið á ljósunum á trénu var gengið í kringum jólatréð og jólasöngvar sungnir með undirleik harmonikuspilara úr Nikkólínu. Eiga harmonikuspilararnir eiga mikið hrós fyrir að spila í þeim talsverða kulda sem var. Þá komu tveir jólasveinar sem eitthvað höfðu ruglast á dagatalinu og dönsuðu með í kringum jólatréð við mikinn fögnuð barnanna en að því loknu gáfu þeir börnunum góðgæti úr pokum sínum áður en þeir héldu aftur til fjalla.
Horfa á YouTube
Það er ekki ofsögum sagt að hrafninn sé ólíkindatól og stríðinn er hann með eindæmum. Flestir muna eftir umfjöllun okkar hér fyrir skömmu þar sem rætt var um hrafninn og þjófnað hans á endurskini af vegstikum á Svínadal. Nú síðastliðinn sunnudag var hrafninn hins vegar staðinn að því að stríða öðrum fugli og réðst hrafninn ekki á garðinn þar sem hann er lægstur. Sá sem varð fyrir barðinu á stríðni krumma að þessu sinni var nefnilega konungur íslenskra fugla, Örninn. Á meðfylgjandi myndskeiði sem tekið var í landi Spágilsstaða í Laxárdal síðastliðinn sunnudag má sjá þessi ótrúlegu samskipti hrafnsins og arnarinns sem endar með því að örninn gefst upp á stríðini krumma og hefur sig til flugs og flýgur í átt að Hvammsfirði. Aðrir hrafnar sem ekki voru eins hugaðir og bróðir þeirra héldu sig í hæfilegri fjarlægð og fylgdust með. Í bakgrunni bíta kindur Gísla Þórðarsonar bónda á Spágilsstöðum grasið og láta sér fátt um finnast þó svo þessi ógnvænlegi og stóri ránfugl sitji svo stutt frá þeim. Töluvert hefur sést til ferða arnarinns á þessum slóðum í sumar en aðalheimkynni arnarinns eru við Breiðafjörð. Samkvæmt vef Náttúrufræðistofnunar var vitað um 66 arnarpör á landinu árið 2006.
Horfa á YouTube
Vel var sótt á alla viðburði Félags sauðfjárbænda í Dalasýslu sem hélt sinn árlega haustfagnað nú um helgina. Hátíðin hófst með sviðaveislu og hagyrðingakvöldi í íþróttahúsinu að Laugum í Sælingsdal. Um fjögurhundruð manns sóttu sviðaveisluna sem tókst vel. Þá fór fram á laugardaginn Íslandsmeistarakeppni í rúningi. Nokkur hundruð manns fylgdust með keppninni og voru keppendur hvattir áfram af sínum sveitungum. Alls tóku tólf keppendur þátt og komust níu þeirra áfram í aðra umferð og þrír keppendur komust síðan áfram í úrslit. Þar vann Reynir Þór Jónsson bóndi að Hurðarbaki í Árnessýslu sigur en Guðmundur Þór Guðmundsson frá Kvennabrekku varð í öðru sæti og í þriðja sæti hafnaði Jón Ottesen. Þá var boðið uppá grillað lambakjöt á laugardagskvöldið í Dalabúð þar sem einnig fór fram verðlauna afhending í hönnunarsamkeppni FSD og ÍSTEX ásamt því að verðlaun voru veitt og ljósmyndasamkeppni FSD og einnig fyrir þrjú efstu sætin í rúningskeppninni. Á meðfylgjandi myndskeiði má sjá nokkra af keppendunum munda klippurnar ásamt áhugasömum áhorfendum í upphafi keppninnar á laugardaginn.
Horfa á YouTube
Margir lögðu leið sína í KM-Þjónustuna í gær til þess að skoða og reynsluaka nýjustu gerð af Zetor dráttarvélum sem voru þar til sýnis. Það var fyrirtækið Vélaborg landbúnaður ehf sem stóð fyrir sýningunni en þeir eru umboðsaðilar fyrir Zetor á Íslandi. Vélaborg landbúnaður er nú á hringferð um landið til að kynna nýjstu gerð Zetor dráttarvéla. Nánari upplýsingar um hringferðina má finna hér. Meðfylgjandi myndir voru teknar á sýningunni í Búðardal í gær.
Horfa á YouTube
Sláturtíð er nú hafin með tilheyrandi umstangi og vinnu hjá bændum og öðrum sem þjónusta bændur og sláturleyfishafa. Fyrir haustið var boðin út keyrsla á sláturfé fyrir Vesturland og kemur það í hlut Unnsteins Kristinns Hermannssonar bónda á Leiðólfsstöðum II í Laxárdal að koma sláturfé af Vesturlandi í sláturhús Sláturfélags Suðurlands á Selfossi þetta árið en hann átti lægsta tilboð í flutningana. Unnsteinn, eða Steini Kiddi eins og flestir Dalamenn þekkja hann fór jómfrúarferðina þetta haustið með fjögurhundurð sláturlömb austur á Selfoss úr Dölum. Að sögn Unnsteins kemur hann til með að aka sláturfé út október. Á meðfylgjandi myndskeiði má sjá bifreiðina og fjárflutningavagninn sem Unnsteinn notar við flutningana. Bíllinn er af gerðinni Mercedes Benz Actros 2650 en vagninn sem er í eigu Sláturfélags Suðurlands tekur á bilinu 400 til 420 lömb í einni ferð.
Horfa á YouTube
Í gær fóru fram réttir í Skarðsrétt, Skerðingsstaðarétt, Gillastaðarétt, Fellsendarétt og í Brekkurétt í Dölum. Ekki er vitað annað en göngur og réttir hafi gengið nokkuð vel þrátt fyrir rysjótt veðurfar. Meðfylgjandi myndskeið var tekið upp í Gillastaðarétt í Laxárdal þar sem Laxdælingar smöluðu saman sínu fé sem hefur haft sumardvöl á Ljárskógafjalli. Hér á árum áður var venjan sú að menn skiptust á söngvatni og hófu upp raust sína og stofnuðu þéttskipaða réttarkóra og myndaðist þá oftar en ekki sérstök og skemmtileg stemning á milli þess að menn drógu fé sitt í dilka. Einnig segja sögur að sumir hafi einnig notað réttirnar í að gera upp óútkjálð deilumál. Lítið bar á söngvatninu að þessu sinni, enda sunnudagur, og engir réttarkórar voru stofnaðir né deilumál útkljáð svo vitað sé. Sjón er sögu ríkari í meðfylgjandi myndbandi.
Horfa á YouTube
Víða þarf að spara í samfélaginu um þessar mundir -það er skiljanlegt og nauðsynlegt þegar harðnar á dalnum. Þegar kemur hins vegar að grunnþjónustu samfélagsins þarf að gaumgæfa hlutina og beita ákveðinni forgangsröð. Við Dalamenn þekkjum þessa atburðarás undanfarin misseri og tökum að sjálfsögðu þátt í verkefninu af heilum hug rétt eins og aðrir landsmenn. Búðardalur.is hóf göngu á sínum tíma þegar augljóst var að síðasti lögreglumaðurinn myndi hætta störfum í Búðardal og efndi til undirskriftarsöfnunar. Viðbrögð voru gríðargóð og höfðu áhrif án þess þó að lyktir máls yrðu afgerandi. Nú hefur það flogið fyrir og heyrst í hornum stjórnsýslunnar að fækka eigi sjúkrabifreiðum í Dölum úr tveimur í eina, en báðar bifreiðarnar eru mjög vel tækjum búnar og vel við haldið. Miðað við það víðfeðmi sem þjónustunni er ætlað að ná til er þetta ætlunarverk fásinna. Bílarnir báðir hafa gengt gríðarlega mikilvægu hlutverki og verið íbúum bráðnauðsynleg öryggistæki. Við hittum hér fyrir Karl Inga Karlsson yfirmann sjúkraflutninga í Dalasýslu og spyrjum hann meðal annars um framtíð sjúkraflutninga í Dalasýslu.
Horfa á YouTube
Dalakot í Búðardal er nýr gisti og veitingastaður að Dalbraut 2. Staðurinn hefur verið betur þekktur í gegnum árin sem Gistiheimlið Bjarg (Villapizza), en nýjir eigendur ákváðu með kaupum sínum á húsnæðinu að endurnýja nafnið. Það eru þau Pálmi Jóhannsson frá Hlíð í Hörðudal og Anna Sigríður Grétarsdóttir kona hans sem með miklum myndarskap hafa tekið til hendinni og opna nú nýtt gistiheimili og veitingastað með hlýlegu og glaðværu viðmóti sínu. Pálmi var áður verslunarstjóri hjá Byko á Selfossi en ákvað að leita á vit nýrra ævintýra ásamt nýrri tengdadóttur Dalanna, Önnu Sigríði Grétarsdóttur sem er bóndadóttir frá Seljavöllum undir Eyjafjöllum. Við heimsóttum Dalakot á dögunum og hittum Pálma þar fyrir sem var í óða önn að mála glugga og lagfæra húsnæðið að utan. Við spjölluðum við Pálma í stutta stund, og má horfa á viðtalið við hann hér að neðan.
Horfa á YouTube
Hún er örugglega frumkvöðull í skóla- og félagsmálum um áratuga skeið í Búðardal. Þrúður Kristjánsdóttir heitir hún og undir hennar handleiðslu bæði sem kennara og skólastjóra grunnskólans hefur hún leiðbeint og horft á eftir á annað þúsund nemendum útí lífið allar götur síðan hún kom til Búðardals árið 1962 til að kenna í einn vetur. Það teygðist úr því heldur betur. Ferillinn spannar meir en 40 ár og þar af 22 ár sem skólastjóri. Síðan kennslunni lauk hefur hún gegnt fjölmörgum trúnaðarstörfum í Dölum og er enn að. Lífskrafturinn er til staðar og áhuginn á málefnum liðandi stundar í nærsamfélaginum er svo sannarlega fyrir hendi -" hún er óstöðvandi -eitt tekur við af öðru -maður veit aldrei hvað tekur við næst" sungu og sögðu systur hennar og ættmenni í afmælishófi í dag í DALABÚÐ. Þrúður er 75 ára í dag 21.júlí -margir sóttu hana heim í tilefni dagsins og tókum við hana tali í tilefni dagsins.
Horfa á YouTube
Þjóðhátíðardeginum 17.júní var vel fagnað af Dalamönnum sem fjölmenntu í skrúðgöngu í Búðardal sem farin var frá dvalarheimilinu Silfurtúni og að túninu fyrir utan Dalakot. Þar héldu fjallkonan og Einar K. Guðfinnsson forseti Alþingis ræður en að því loknu var boðið uppá kaffi og með því í Dalakoti. Á meðan hoppaði ungviðið í hoppukastala sem blásin hafði verið upp fyrir utan. Það var Eyþór Jón Gíslason sem stjórnaði dagskránni fyrir hönd hestamannafélagsins Glaðs. Síðdegis var svo boðið uppá stórtónleika í Dalabúð með Ragnari Bjarnasyni í fararbroddi en ásamt honum komu fram Daladrengirnir Ríkharður Jóhannsson (Rikki í Gröf) saxófónleikari, Þorkell Cýrusson gítarleikari, Jónas Guðmundsson bassaleikari, Jóhann Ríkharðsson trommuleikari, Hilmar Óskarsson gítarleikar og Þorgeir Ástvaldsson sem spilaði á píanó og fylgdi Ragnari eftir í söng hans. Hér fyrir neðan má sjá stutt myndbrot frá deginum. Búðardalur.is þakkar Ragnari Bjarnasyni kærlega fyrir að gefa sér tíma á þessum hátíðardegi til að kíkja í heimsókn í Dalina og skemmta gestum í Dalabúð.
Horfa á YouTube
Framkvæmdir hafa staðið yfir á lóðinni við tjaldstæðin í Búðardal að undanförnu en nú sér fyrir endann á því og kom flokkur frá Loftorku í Borgarnesi nú á mánudag og kláraði að steypa aðstöðu fyrir húsbíla skammt fyrir ofan tjaldstæðið sjálft. Að sögn verktaka hefur verkið dregist aðeins en það er vegna breytinga hjá arkitekt svæðisins. Einnig hefur þurft að bíða nokkuð eftir rétta veðrinu fyrir steypuvinnuna. Þá komu fleiri steypubílar í kjölfarið ásamt dælubíl og steyptu starfsmenn Loftorku gólfið í gömlu sundlauginni við Dalabúð. Það er sveitarfélagið Dalabyggð sem stendur að framkvæmdunum við tjaldsvæðið ásamt lagfæringu gömlu sundlaugarinnar en til stendur að koma sundlauginni aftur í gagnið og kenna grunnskólabörnum í Auðarskóla sund þar í vetur. Á meðfylgjandi myndskeiði má sjá steypumenn að störfum í Búðardal.
Horfa á YouTube
Fálkaungi gerði sig heimakominn á rafmagnsstaur í heimatúninu á Vígholtsstöðum í Laxárdal nú laust fyrir hádegi í morgun. Fálkaunginn sat á staurnum í um það bil 10 mínútur og lét sér fátt um finnast þótt skógarþrestirnir, þúfutittlingurinn og stelkurinn gerðu aðsúg að honum í þeirri von að hrekja hann á brott. Fálkinn lét að lokum tilleiðast og hóf sig til flugs til nýs áfángastaðar. Að sögn Guðmundar A.Guðmundssonar dýravistfræðings hjá Náttúrustofnun Íslands er um nýlega fleygan fálka frá sumrinu að ræða. Guðmundur segir að ungir fálkar séu ekki ólíkir haferni á litinn, móbrúnir og flikróttir en stærðarmunur sé verulegur. Fálkinn er varpfugl um allt land, en höfuðstöðvar hans eru á Norðausturlandi, einkum í Þingeyjarsýslum.
Horfa á YouTube
Sunnudaginn 9.júní 2013 buðu bændurnir Þorgrímur og Helga á rjómabúinu Erpsstöðum í Miðdölum fólki að mæta og horfa á þegar kúnum var hleypt út í vorið eftir langa inniveru. Þeir gestir sem mættir voru á Erpsstaði skemmtu sér svo við að horfa á þegar kýrnar slettu úr klaufunum og nutu þess að hlaupa út í vorið.
Horfa á YouTube
Laugardaginn 8.júní 2013 var haldin vorhátíð dvalarheimilisins Silfurtúns í Búðardal. Boðið var uppá grillaðar pylsur og hamborgara ásamt kaffi og með því. Þá komu fram ungir og upprennandi tónlistarmenn úr Dölum og sungu og spiluðu. Einnig spilaði harmonikufélagið Nikkólína og félagar úr kór eldri borgara í Dalabyggð tók nokkur lög. Á meðan á þessu stóð gat yngsta kynslóðin fengið að setjast á hestbak og látið teyma sig hring á túninu fyrir framan Silfurtún. Hlýtt var í veðri þennan dag þó sólin hafi ekki látið sjá sig og var ekki annað að sjá en að heimilisfólk að Silfurtúni hafi verið ánægt með daginn.
Horfa á YouTube
Hér er á ferðinni skemmtilegt viðtal við Jens Hvidtfeldt Nielsen fyrrverandi sóknarprest í Dalaprestakalli. Jens var sóknarprestur í Dölum frá árinu 1988 til ársins 1995 en þá fluttist hann til Calgary í Kanada þar sem hann þjónaði dönskum söfnuði. Í dag býr Jens í bænum Skive á Jótlandi í Danmörku.
Horfa á YouTube
Fyrir stuttu heimsóttum við Hjalta Þórðarson fyrrverandi bónda á Hróðnýjarstöðum í Laxárdal og tókum hann tali og spjölluðum við hann um ævi hans í Dölum, upprunan og vísurnar. Hjalti og eiginkona hans Inga Guðbrandsdóttir tóku á móti okkur sem höfðingjar væru á ferð á heimili þeirra í Búðardal. Hjalti er Þingeyingur í báðar ættir, en foreldrar hans bjuggu að Hléskógum í Höfðahverfi en Inga er frá Lækjarskógi í Dalasýslu. Hjalti og Inga hófu búskap sinn í Hjarðarholti árið 1949 en fluttu að Hróðnýjarstöðum árið 1967 og létu síðan af búskap á Hróðnýjarstöðum árið 1999 eða eftir 50 ára búskaparstörf. Horfa má á viðtalið við Hjalta hér fyrir neðan og einnig á Dal-varpinu hér á síðunni.
Horfa á YouTube
Eitt af atriðum Jörfagleðinnar í ár var kosningagleði sem fram fór í Dalabúð í gær milli 15:00 og 18:00. Þar var boðið uppá margvísleg tónlistaratriði og má þar helst nefna harmonikufélagið Nikkólínu, Rikka í Gröf með saxófóninn ásamt hljómsveit sem skipuð var Hilmari Óskarssyni, Jónasi Guðmundssyni, Jóhanni Ríkharðssyni, Jóni Benediktssyni og Þorkeli Cýrussyni. Þá komu fram Gospelkór Dalanna undir stjórn Þorkels Cýrussonar og Hlöðver Smári og félagar í hljómsveitinni OAS frá Ólafsvík. Síðast en ekki síst steig á stokk Páll Óskar Hjálmtýsson sem hitaði upp fyrir kvöldið með nokkrum lögum.
Horfa á YouTube
Elmar Þór Gilbertsson er einn af þessum duglegu Dalamönnum sem er að gera það gott úti í hinum stóra heimi. Elmar Þór er borinn og barnfæddur Dalamaður en býr nú í Hollandi þar sem hann syngur í stærsta óperuhúsi Hollands, De Nederlandse Opera sem staðsett er í Amsterdam. Þar hefur honum gengið vel og meðal annars verið ráðinn þar í uppfærslu árið 2015. Elmari hefur einnig verið boðið að taka þátt í einni af stærstu óperuhátíð í Evrópu, það er til Aix-en-provance í Frakklandi. Þar mun Elmar syngja töfraflautuna í júlí 2014. En þangað til segist Elmar hafa nóg að gera í smærri verkefnum í Hollandi og meðal annars í Maastricht. Í viðtalinu sem við tókum við Elmar segir hann meðal annars frá æskudögunum í Dölunum og að hann hafi alltaf verið látinn syngja í bílskúrsböndunum í Búðardal þegar hann bjó þar. Einnig segir Elmar frá því sem á daga hans hefur drifið frá því hann flutti úr Dölum á vit nýrra ævintýra.
Horfa á YouTube
Alþingismaðurinn og Dalabóndinn Ásmundur Einar Daðason er á þönum þessa dagana um suðvesturkjördæmi ásamt flokkssystkynum sínum í þeim tilgangi að hitta kjósendur. Með mikilli lægni náðum við að króa Ásmund af í stutta stund og taka hann tali. Í viðtali okkar við Ásmund Einar segist hann meðal annars finna það á jafnöldrum sínum að það sé vilji til þess að búa í sveitum landsins og engin sérstakur vilji sé til þess að búa á höfuðborgarsvæðinu. Fólk þurfi hins vegar að hafa í sig og á og það verði að vera ákveðin grunnþjónusta á svæðunum bæði þegar kemur að skólum og menntun, fjarskiptum, samgöngum og öðru. Ásmundur segist þess fullviss að skilningur manna sé að aukast á þessu.
Horfa á YouTube
Hér er á ferðinni viðtal sem tekið var við Sr.Önnu Eiríksdóttur sóknarprest Dalaprestakalls nú á dögunum. Séra Anna tók formlega við starfi sóknarprests í Dalaprestakalli þann 30.september 2012. Forveri Sr. Önnu var Sr.Óskar Ingi Ingason sem færði sig um set yfir á Snæfellsnesið og starfar sem sóknarprestur í Ólafsvík. Sr. Anna segir hér Þorgeiri Ástvaldssyni stuttlega sögu sína og ástæður þess að hún er nú sest að sem sóknarprestur Dalamanna og hvað réði því að hún sótti um starfið þegar það var auglýst.
Horfa á YouTube
Engin lýsing fylgir myndbandinu á YouTube.
Horfa á YouTube
Í umræðum um fundarstörf forseta á Alþingi Íslendinga í gær spunnust upp umræður um sauðburð og forgangsröðun á milli Ásmundar Einars Daðasonar þingmanns okkar Dalamanna og Össurar Skarphéðinssonar utanríkisráðherra. Össur hafði á orði að hann skildi ekki þær kvartanir þingmanna að þeir kæmust ekki heim í kvöldmat á sama tíma og verið værir að vinna að því að ljúka öllum þeim málum sem fyrir liggja og reyna á að klára fyrir þinglok. Ekki mun það hafa verið Ásmundur sem kvartaði yfir því að komast ekki heim í kvöldmat en í kjölfar þessarar ummæla Össurar steig Ásmundur í ræðustól og bauð hann Össuri að koma í sauðburð í Dalina í vor sem Össur svo þáði með þökkum. Svo er bara spurningin, kemur Össur í vor til að hjálpa Ásmundi við sauðburðinn? Eitt er víst, Búðardalur.is verður á vaktinni.
Horfa á YouTube
Þorrablótsmyndband 4. Þorrablót Suðurdala 2013. Hjörtur Vífill Jörundsson
Horfa á YouTube
Þorrablótsmyndband 4. Þorrablót Suðurdala 2013. Hjörtur Vífill Jörundsson
Horfa á YouTube
Þorrablótsmyndband 2. Þorrablót Suðurdala 2013. Hjörtur Vífill Jörundsson
Horfa á YouTube
Þorrablótsmyndband 1. Þorrablót Suðurdala 2013. Hjörtur Vífill Jörundsson
Horfa á YouTube
Sigvaldi Guðmundsson er borinn og barnfæddur Dalamaður fæddur á Hamraendum í Miðdalahreppi. Hann er sonur Guðmundar Baldvinssonar frá Hamraendum og Gróu Sigvaldadóttur frá Stykkishólmi. Sigvalda þarf ekki að kynna fyrir þeim sem bjuggu í Dölum fyrir árið 2000 en þá fluttist Sigvaldi til höfuðborgarinnar. Sigvaldi átti farsælan feril sem lögregluvarðstjóri í Dölum og var vel liðinn af íbúum héraðsins og þeim sem til hans þurftu að leita vegna starfa hans. Eftir að Sigvaldi fluttist til höfuðborgarinnar hóf hann störf sem lögregluvarðstjóri hjá Lögreglunni í Reykjavík og starfaði þar út sinn starfsferil sem lögreglumaður. Við mæltum okkur mót við Sigvalda og spjölluðum við hann um daginn og veginn og þann tíma er hann bjó í Dölunum. …..nánar á budardalur.is
Horfa á YouTube
Þetta er upptaka frá því að hringt var í Hemma Gunn og Ragga Bjarna beint úr Dalabúð frá þorrablóti Laxdælinga sem haldið var laugardaginn 26.janúar 2013. Í fyrstu er ekkert hljóð en síðan kemst hljóðsamband á og Raggi tekur við sér 🙂
Horfa á YouTube
Hér er á ferðinni þorrablótsmyndband sem Hjörtur Vífill Jörundsson gerði ásamt þorrablótsnefnd Laxdæla fyrir árið 2013. – Þórður læknir stendur í ströngu í að reyna klára að byggja nýja húsið sitt. Hér sést þegar hann ásamt VINUM sínum reynir að þjösnast áfram við þetta.
Horfa á YouTube
Frá og með miðjum desember 2012 til 31.desember síðastliðinn stóð yfir kosning á vefnum okkar á Dalamanni ársins 2012. Niðurstaða kosningarinnar liggur nú fyrir en það var Freyja Ólafsdóttir rekstraraðili Leifsbúðar, kennari í Auðarskóla og athafnakona sem fékk flest atkvæði. Búðardalur.is hitti á Freyju þar sem hún var stödd í Reykjavík og veitti hún viðtöku áletruðum verðlaunagrip sem á stendur „Dalamaður ársins 2012, Freyja Ólafsdóttir, Kosning á Búðardalur.is“ Við óskum Freyju innilega til hamingju með titilinn sem vonandi verður henni sem og öðrum hvatning til að láta enn frekar gott af sér leiða í Dölum og leggja sitt lóð á vogarskálarnar til eflingu menningar og mannlífs í Dölum.
Horfa á YouTube
Jólaball Lions klúbbsins í Búðardal haldið 27.desember 2012 í Dalabúð
Horfa á YouTube
Flytjandi: Guðrún Gunnarsdóttir. Lag: Þorgeir Ástvaldsson. Texti: Helga S. Þorgilsdóttir
Horfa á YouTube
Elsti núlifandi Íslendingurinn er úr Dalabyggð og heitir Guðríður Guðbrandsdóttir.Hún er borin og barnfædd að Spágilsstöðum í Laxárdal og bjó um áratuga skeið í Búðardal í því húsi sem heitir Aldan. Foreldrar Guðríðar voru Guðbrandur Jónsson bóndi og kona hans Sigríður Margrét Sigurbjörnsdóttir.Börn þeirra urðu 11 að tölu og er Guðríður 6.barn í röð systkina sinna.Eiginmaður Guðríðar var Þorsteinn Jóhannsson verslunarmaður.Þau fluttust frá Búðardal 1952 suður til höfuðborgarinnar.
Horfa á YouTube
Hér er myndskeið frá seinni réttum í Fellsendarétt sem fram fór þann 30.september 2012. Það var Hjörtur Vífill Jörundsson sem fangaði stemninguna fyrir Búðardalur.is.
Horfa á YouTube
Gísli Gunnlaugsson flutti til Búðardals árið 1969 og bjó þar í 33 ár. Gísli starfaði við margt á þeim tíma en flestir muna eftir honum úr pakkhúsi Kaupfélags Hvammsfjarðar, stofnanda Dalakjörs og starfsmanns Kjötpokaverksmiðjunnar. Einnig var Gísli gríðarlega öflugur í félagsmálum og óþreytandi hlaupagarpur um vegi Dalasýslu. Gísli hefur einnig í gegnum árin séð um framtöl fjölmargra Dalamanna og þekkir því suma Dalamenn mun betur en aðrir. Hér ræðir Þorgeir Ástvaldsson við Gísla um veru hans í Dölum, lífið og tilveruna.
Horfa á YouTube
Morgunþátturinn Virkir morgnar á Rás 2 þar sem þau Guðrún Dís Emilsdóttir og Andri Freyr Viðarsson sitja við stjórnvölinn buðu Þorgeiri Ástvaldssyni í þáttinn til sín þann 1.október 2012 í svokallað mánudags drottningarviðtal. Viðtalið við Þorgeir má hlíða á hér. Við þökkum Gunnu Dís og Andra Frey fyrir að leyfa okkur að birta viðtalið hér á síðunni okkar.
Horfa á YouTube
Hér er á ferðinni eitt af fjölmörgum myndböndum sem Heiðar Þórðarson tók upp á myndbandsupptökuvél sína í Dölum. Á þessu myndskeiði má sjá Dalabændur koma saman í Gillastaðarétt haustið 1989.
Horfa á YouTube
Jómfrúarferð Strætó BS í Dali og í Hólmavík var sunnudaginn 2.september 2012. Hver annar er Hjörtur Vífill sat fyrir bílstjóranum þegar hann renndi inn í Búðardal og tók af honum myndir.
Horfa á YouTube
Laugardaginn 25.ágúst síðastliðinn var efnt til hátíðar í samkomuhúsinu Röðli á Skarðsströnd. Samkomuhúsið var byggt á árabilinu 1942 til 1944 af Ungmennafélaginu Vöku á Skarðsströnd. Þar voru haldnar samkomur og skemmtanir á árum áður og voru réttarböllin sem þar voru haldin víðfræg. Hjörtur Vífill Jörundsson var á staðnum með myndatökuvélina og fangaði stemmninguna á svæðinu. Boðið var uppá kaffi, kökur og grillaðar pylsur. Þá var sýnt handverk ásamt því að krydd, sultur og aðrar heimagerðar afurðir af Skarðsströnd vöru til sölu. Sett hafði verið upp sýning í samkomuhúsinu þar sem safnað hafði verið saman endurminningum og sögum úr Röðli. Ekki hafa fundist neinar ljósmyndir frá samkomuhúsinu Röðli frá því í gamla daga og er fólk því vinsamlegast beðið um að setja sig í samband við vefinn ef fólk telur sig vita um gamlar ljósmyndir af Röðli. Húsafriðunarnefnd hefur styrkt endurbyggingu hússins og er sú vinna í gangi.
Horfa á YouTube
Einn af brottfluttum sonum Dalanna heitir Sigurður Svansson, sonur þeirra Svans Hjartarssonar frá Vífilsdal og Eddu Tryggvadóttur frá Arnarbæli. Siggi Svans ólst fyrst upp við Lækjarhvamminn og síðar við Dalbrautinni hjá foreldrum sínum og systkynum en fluttist svo í höfuðborgina 1987 eftir skólagöngu í Búðardal og á Akranesi. Siggi var líka mikið í sveit hjá Elsu ömmu sinni í Arnarbæli. Siggi byrjaði að vinna hjá Sigga Harðar rafeindavirkja en stofnaði svo sitt eigið fyrirtæki ásamt félaga sínum Herði Sigurðssyni í mars 2003. Fyrirtækið heitir Radíóraf ehf og er staðsett á Smiðjuvegi 52 (rauð gata) í Kópavogi. Heimasíða fyrirtækisins er radioraf.is Auk þess rekur Siggi lítið fyrirtæki ( Svansson ehf ) þar sem hann sérhæfir sig í innflutningi á bátum. Þar er vefsíðan svansson.is Siggi segist reyna að fara eins oft í Dalina og hann geti og helst oftar eins og hann orðar það sjálfur. Siggi hefur líka greinilega sterkar taugar í Dalina og Búðardal því hann segir að ef hann ætti þess kost að flytja aftur eitthvað út á land þá myndi hann fara aftur í Búðardal. Við tókum Sigga Svans tali fyrr á þessu ári þar sem þetta og margt margt fleira skemmtilegt kom fram en viðtalið má finna hér fyrir neðan og í Dalvarpinu hér á síðunni. Viðtalið fór fram í Kópavogi vorið 2012.
Horfa á YouTube
Árlegur viðburður í Ytri-Fagradal á Skarðsströnd í Dölum eru Frændaleikar. Þá koma heljarmenni afkomendur Steinólfs Lárussonar saman og etja kappi sín í milli.
Horfa á YouTube
Baldur Þórir Gíslason tók þetta myndskeið þar sem hann ásamt föður sínum Gísla Baldurssyni eru við makrílveiðar við Hólmavík í ágúst 2012.
Horfa á YouTube
Þetta er viðtal sem tekið var við Halldór Þorgils Þórðarson frá Breiðabólsstað á Fellsströnd þann 15.apríl 2012 síðastliðinn. Viðtalið fór fram í Hjarðarholtskirkju en þennan dag fór fram ferming þriggja ungmenna úr Dalabyggð og þá sem svo oft áður sá Halldór Þórðarson um undirleik á orgel Hjarðarholtskirkju. Sendið okkur tölvupóst á: budardalur@budardalur.is
Horfa á YouTube
Hér er á ferðinni viðtal sem Gísli Einarsson fréttamaðurinn landskunni á RÚV tók við Sigurð Jökulsson bónda á Vatni er hann var staddur á Landsmóti hestamanna í Víðidal í lok júní 2012.
Horfa á YouTube
Grettir Börkur Guðmundsson er flestum Dalamönnum að góðu kunnur en hann rak meðal annars söluskála Olís og Skeljungs í Búðardal um árabil eftir að hafa tekið við rekstrinum af Kristjönu Ágústsdóttur. Söluskálinn er sama hús og þar sem ÁTVR er með áfengisverslun sína í Búðardal í dag við Vesturbraut.
Horfa á YouTube
Bæjarhátíðin "Heim í Búðardal" var haldin helgina 6.-8.júlí 2012. Myndband þetta er frá laugardeginum 7.júlí og sýnir brot af stemmningunni sem var á svæðinu.
Horfa á YouTube
Hér má sjá myndskeið sem tekið var þann 9.júní 2012 þegar Vorhátíð Dvalarheimilisins Silfurtúns í Búðardal var haldin. Það var Hjörtur Vífill Jörundsson sem tók myndirnar og klippti saman.
Horfa á YouTube
Hér er á ferðinni skemmtilegt viðtal við Kristinn Jónsson frá Hallsstöðum á Fellsströnd. Kristinn er Dalamönnum að góðu kunnur en Kristinn bjó í yfir 50 ár í Dölum og starfaði við hin ýmsu störf ásamt því að vera virkur félagsmálamaður. Einnig starfaði Kristinn í fjölda ára í sveitarstjórn Dalasýslu. Í viðtalinu sem Þorgeir Ástvaldsson átti við Kristinn snemma árs 2012 svarar Kristinn meðal annars þeirri spurningu hvort að hann gæti hugsað sér að flytja aftur í Dalina.
Horfa á YouTube
Myndband tekið í Skarðsstöðí lok maí 2012. Uppskipun eftir Grásleppuveiðar á Hugrúnu DA 1. Við birtum þetta myndband í tilefni sjómannadagsins og óskum öllum sjómönnum innilega til hamingju með daginn. Myndbandið tók Hjörtur Vífill Jörundsson.
Horfa á YouTube
Laugardaginn 26.maí 2012 var kúnum hleypt út í fyrsta skipti á Erpsstöðum eftir að hafa verið á húsi í vetur. Hjörtur Vífill fór og kvikmyndaði fjörið.
Horfa á YouTube
Hér kemur myndband sem unnið var fyrir Þorrablót Suðurdala 2011. Myndataka og klipping: Hjörtur Vífill Jörundsson.
Horfa á YouTube
Veturinn 2011-2012 sóttu fullt af hressum krökkum fótboltanámskeið á vegum Ungmennafélaganna undir dyggri leiðsögn þeirra Svölu Svavarsdóttur og Angantýs E.Guðmundssonar. Myndataka og klipping: Hjörtur Vífill Jörundsson.
Horfa á YouTube
Hér er myndskeið frá 112 deginum sem haldinn var í Búðardal þann 11.febrúar 2012. Myndataka og klipping: Hjörtur Vífill Jörundsson
Horfa á YouTube
Þorgeir Ástvaldsson ræðir hér við Ólaf Guðmundsson sérfræðing í umferðaröryggismálum um ástand og öryggi vega í Dölum.
Horfa á YouTube
Engin lýsing fylgir myndbandinu á YouTube.
Horfa á YouTube