Týndir þú hjólinu þínu?

Screen Shot 2016-01-18 at 22.50.43Mikil veðurblíða er í Dölum í dag og frábært veður til útivistar.

Ungir drengir sem voru að njóta veðurblíðunnar á bryggjunni í Búðardal í dag ráku augun í reiðhjól í sjónum skammt frá bryggjunni.

Nú er spurning hvort einhver sakni reiðhjóls eða viti um einhvern sem hefur tapað reiðhjólinu sínu.

Reiðhjólið virðist vera nýlegt og blátt að lit eins og sjá má á meðfylgjandi ljósmyndum sem teknar voru í dag á bryggjunni í Búðardal.
Screen Shot 2016-01-18 at 22.50.54Screen Shot 2016-01-18 at 22.51.05

Upprunalegur höfundur: Sigurður Sigurbjörnsson. Varðveitt upprunaleg grein

Leave a Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *