Búðardalur.is
Menningarmiðja Dalanna
Búðardalur.is
Menningarmiðja Dalanna

Fréttavefur RÚV greindi frá því nú fyrir stundu að alvarlegt umferðarslys hefði orðið í Saurbæ í Dölum. Einn erlendur ferðamaður mun hafa verið í bifreiðinni og var maðurinn fluttur alvarlega slasaður með þyrlu Landhelgisgæslunnar á Landspítalann í Fossvogi.
Fram kemur að slysið sé rakið til þess að ökumaður hafi misst stjórn á bifreiðinni í lausamöl.
Upprunalegur höfundur: Sigurður Sigurbjörnsson. Varðveitt upprunaleg grein