Búðardalur.is
Menningarmiðja Dalanna
Búðardalur.is
Menningarmiðja Dalanna

Menningarvefsíðan Búðardalur.is óskar Dalamönnum og landsmönnum öllum innilega til hamingju með þjóðhátíðardaginn 17.júni og vonar að dagurinn verði öllum skemmtilegur og eftirminnilegur.
Samkvæmt því er fram kemur á Dalir.is verða hátíðahöld á 17.júní sem hér segir í Dalabyggð:
Safnast saman við Dvalarheimilið Silfurtún klukkan 13:00 en þar fá börnin fána og blöðrur.
Skrúðganga verður að mótsvæði hestamannafélagsins Glaðs þar sem hlé verður gert á dagskrá hestaþings sem stendur yfir nú um helgina.
Á reiðvellinum verður hefðbundin hátíðardagskrá.
Ávarp fjallkonunnar, hátíðarræða og hoppukastalar fyrir börnin við eða í reiðhöllinni.
Miðdegiskaffi verður síðan í Leifsbúð.
Hefðbundin 17.júní hátíðarhöld verða síðan í Saurbæ að vanda skv. Dalir.is
Upprunalegur höfundur: Sigurður Sigurbjörnsson. Varðveitt upprunaleg grein