Týnd kisa í Búðardal – hefur þú séð Ylfu?

Ljósm: Olga Jenný
Þessi gulbröndótta kisa var tekin í misgripum í Reykjavík en var svo skilin eftir einhversstaðar úti í Búðardal. Olga Jenný Gunnarsdóttir eigandi Ylfu setti sig í samband við okkur og óskaði eftir því að auglýst yrði eftir kisu og er það okkur ljúft og skylt.

Ljósm: Olga Jenný
Kisa er örmerkt með númerinu 352098100057864 og er skráð á Olgu.

Olga segist vonast eftir aðstoð Dalamanna við að finna kisu og segist hún koma og sækja hana ef hún finnst eða ef einhver sé vonandi búinn að finna hana og sé að passa hana.

Síminn hjá Olgu Jenný er 6180981.
Vonandi finnst Ylfa og kemst heil heim. Lesendur mega endilega deila þessari frétt áfram.

Upprunalegur höfundur: Sigurður Sigurbjörnsson. Varðveitt upprunaleg grein

Leave a Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *