Búðardalur.is
Menningarmiðja Dalanna
Búðardalur.is
Menningarmiðja Dalanna

Á dögunum heimsóttum við Sr.Önnu Eiríksdóttur sóknarprest Dalaprestakalls og tókum hana tali. Anna tók formlega við starfi sóknarprests Dalaprestakalls þann 30.september 2012. (sjá frétt um málið). Áður hafði Sr.Óskar Ingi Ingason verið sóknarprestur í Dölum í 17 ár. Óskar Ingi…

Gospelmessa í Hjarðarholtskirkju 10.03.2013 – Efri röð: Sesselja Árnadótti Búðardal, Guðrún Andrea Einarsdóttir Búðardal, Linda Traustadóttir Fellssenda, Guðbjörg Björnsdóttir Sælingsdalstungu, Eggert Aðalsteinn Antonsson Búðardal, Jón Egill Jóhannsson Skerðingsstöðum. Neðri röð: Jóhanna Sigrún Árnadóttir Búðardal, Ragnheiður Hulda Jónsdóttir Skerðingsstöðum, Bjargey Sigurðardóttir…

Nokkur umræða hefur verið í fjölmiðlum undanfarinn sólarhring um norðurljós, en skilyrði til þess að sjá þetta glæsilega sjónarspil náttúrunnar hafa verið með besta móti undanfarið og þar hafa Dalirnir ekki verið nein undantekning. Norðurljósin eru orðin söluvara og ferðaskrifstofur…

Í umræðum á Alþingi Íslendinga í gær spunnust upp umræður um sauðburð og forgangsröðun, á milli þeirra Ásmundar Einars Daðasonar þingmanns okkar Dalamanna og Össurar Skarphéðinssonar utanríkisráðherra. Össur hafði á orði að hann skildi ekki þær kvartanir þingmanna að þeir…

Starfsfólk Dvalarheimilisins Silfurtúns í Búðardal hélt í síðustu viku myndbandasýningu fyrir vistmennina sem þar dvelja. Myndböndin sem vistmönnum voru sýnd voru þorrablótsmyndbönd frá síðustu þorrablótum Suðurdala og Laxdæla. Þessi hugmyndin kviknaði þegar það barst í tal hjá vistmönnum Silfurtúns „að…

Björgunarsveitin Ósk í Dalabyggð var kölluð út nú um klukkan fjögur í dag vegna erlendra ferðamanna sem voru í vandræðum á Svínadal vegna ófærðar og óveðurs. Að sögn Sigurðar Bjarna Gilbertssonar björgunarsveitarmanns mættu björgunarsveitarmenn ferðamönnunum á leið sinni upp á…

Gríðarlegir vatnavextir eru nú í flestum vatnsföllum í Dölum vegna mikilla rigninga og hlýinda sem verið hafa síðustu daga. Flestar ár hafa þó haldið sig í eigin farvegi en Hvammsá í Hvammssveit tók sjálfstæða ákvörðun og ruddi sér leið í…

Þann 1.mars næstkomandi mun flutningafyrirtækið Vörumiðlun ehf taka við rekstri KM-þjónustunnar í Búðardal sem snýr að rekstri vöruflutninga til og frá Dalabyggð. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef KM-Þjónustunnar www.km.is. Tilkynninguna sem birt var á vef KM-þjónustunnar má einnig lesa hér…

Hér eru myndir frá fjórða og síðasta þorrablótinu í Dalabyggð á þessu ári í félagsheimilinu að Staðarfelli. Fullt var út úr dyrum að venju en um fimmtíu og tveggja ára skeið hefur þorrablót árlega verið haldið á þessum stað. Ef…

Það voru bæði spenntir og forvitnir krakkar leikskóla Auðarskóla í Búðardal sem fylgdust með vinnu við nýja viðbyggingu við leikskólann á dögunum, en vinna við viðbygginguna er nú í fullum gangi. 41 barn stundar leikskólann í dag og segja má…