Búðardalur.is
Menningarmiðja Dalanna
Búðardalur.is
Menningarmiðja Dalanna

Framkvæmdir hafa staðið yfir á lóðinni við tjaldstæðin í Búðardal að undanförnu en nú sér fyrir endann á því og kom flokkur frá Loftorku í Borgarnesi miðvikudaginn 17.júlí og kláraði að steypa aðstöðu fyrir húsbíla skammt fyrir ofan tjaldstæðið sjálft.…

Fálkaungi gerði sig heimakominn á rafmagnsstaur í heimatúninu á Vígholtsstöðum í Laxárdal nú laust fyrir hádegi í morgun. Fálkaunginn sat á staurnum í um það bil 10 mínútur og lét sér fátt um finnast þótt skógarþrestirnir, þúfutittlingurinn og stelkurinn gerðu…

Á mánudagskvöld verslunarmannahelgar þann 5.ágúst næstkomandi kemur hópur eldri danskra borgara frá sveitarfélagi Skvie-borgar á Jótlandi í Danmörku í „alltof stutta“ heimsókn til Búðardals með Jens Hvidtfeldt Nielsen fyrrverandi sóknarpresti í Hjarðarholtsprestakalli sem fararstjóra. Í tengslum við þessa heimsókn er…

Þjóðhátíðardeginum 17.júní var vel fagnað af Dalamönnum og öðrum sem fjölmenntu í skrúðgöngu í Búðardal sem farin var frá dvalarheimilinu Silfurtúni og að túninu fyrir utan Dalakot. Þar héldu fjallkonan og Einar K. Guðfinnsson forseti Alþingis ræður en að því…

Kæru Dalamenn og aðrir landsmenn. Til hamingju með daginn. Hátíðarhöld verða í dag í Búðardal og Saurbæ að venju. Safnast verður saman við dvalarheimilið Silfurtún í Búðardal klukkan 14:00 þar sem börnin fá fána og blöðrur. Gengið verður að Dalabúð…

Sunnudaginn 9.júní 2013 buðu bændurnir Þorgrímur og Helga á rjómabúinu Erpsstöðum í Miðdölum fólki að mæta og horfa á þegar kúnum var hleypt út í vorið eftir langa inniveru. Þeir gestir sem mættir voru að Erpsstöðum skemmtu sér svo við…

Hér er á ferðinni skemmtilegt viðtal við Jens Hvidtfeldt Nielsen fyrrverandi sóknarprest í Dalaprestakalli. Jens var sóknarprestur í Dölum frá árinu 1988 til ársins 1995 en þá fluttist hann til Calgary í Kanada þar sem hann þjónaði dönskum söfnuði. Í…

Bílvelta varð við Skógstagl nú síðdegis eða skammt frá bænum Álfheimum í Miðdölum. Engin slys urðu á fólki í þessu óhappi en talsverðar skemmdir urðu á bifreiðinni eins og sjá má á meðfylgjandi ljósmyndum en draga þurfti bifreiðina af vettvangi…

Hinn eini sanni Ragnar Bjarnason mætir í Dalina á þjóðhátíðardaginn 17.júní næstkomandi og heiðrar Dalamenn með nærveru sinni og tekur lagið í Dalabúð kl.17:00. Þessi viðburður var fyrst auglýstur sem atriði á Jörfagleði Dalamanna í ár en var frestað vegna óviðráðanlegra…

Hlaupagarpurinn og Vestfirðingurinn Óskar Jakobsson kom hlaupandi í Búðardal um klukkan 18:00 í dag eftir að hafa lagt af stað í morgun frá Bifröst í Borgarfirði. Óskar lagði af stað hlaupandi úr Reykjavík þann 30.maí síðastliðinn en hann er á…