Búðardalur.is
Menningarmiðja Dalanna
Búðardalur.is
Menningarmiðja Dalanna

Sláturtíð er nú hafin með tilheyrandi umstangi og vinnu hjá bændum og öðrum sem þjónusta bændur og sláturleyfishafa. Fyrir haustið var boðin út akstur á sláturfé á Vesturlandi fyrir Sláturfélag Suðurlands og kom það í hlut Unnsteins Kristinns Hermannssonar bónda…

Í gær fóru fram réttir í Skarðsrétt, Skerðingsstaðarétt, Gillastaðarétt, Fellsendarétt og í Brekkurétt í Dölum. Ekki er vitað annað en göngur og réttir hafi gengið nokkuð vel þrátt fyrir rysjótt veðurfar. Meðfylgjandi myndskeið var tekið upp í Gillastaðarétt í Laxárdal…

Mildi þykir að ekki hafi orðið slys á fólki þegar að veghefli var bakkað uppá fólksbifreið skammt sunnan við bæinn Breiðabólsstað við rætur Bröttubrekku nú í morgun. Verið er að rífa upp klæðningu á stuttum vegarkafla á svæðinu og var…

Hjátrú margra felst í því að segja 7-9-13 og berja þrisvar í borð og þá helst úr viði. Eins og flestir sjálfsagt vita ber hina skemmtilegu dagsetningu 7-9-13 upp í dag. Margt er um að vera í Dölum í dag…

Í tilefni aldarafmælis Morgunblaðsins 2.nóvember næstkomandi ákvað Morgunblaðið að fara í hringferð um landið og heimsækja flesta þéttbýlisstaði þess. Í dag, mánudaginn 2.september er komið að umfjöllun um Búðardal en blaðamenn og ljósmyndarar blaðsins kíktu í heimsókn í Dalina nú…

Laugardaginn 7. september næstkomandi býður Guðrún Ósvífursdóttir til veislu heima að Laugum í Sælingsdal. Þessi hátíð er árangurinn af samstarfi heimamanna í Dölum og þriggja norrænna leikhúsa um Laxdælasögu. Um morguninn verður farið um Laxdæluslóðir og eftir hádegi boðið upp á…

Sú staða kom upp nú í morgun að báðar sjúkrabifreiðar sem staðsettar eru í Búðardal voru kallaðar út og því engin sjúkrabifreið til taks sem stendur. Í ljósi þeirrar umræðu sem verið hefur hér á Búðardalur.is í kjölfar viðtals okkar…

Víða þarf að spara í samfélaginu um þessar mundir -það er skiljanlegt og nauðsynlegt þegar harðnar á dalnum. Þegar kemur hins vegar að grunnþjónustu samfélagsins þarf að gaumgæfa hlutina og beita ákveðinni forgangsröð. Við Dalamenn þekkjum þessa atburðarás undanfarin misseri…

Samkvæmt fréttavef mbl.is nú fyrr í kvöld kemur fram að óskað hafi verið eftir þyrlu landhelgisgæslunnar að Laxá í Dölum vegna manns sem þar hafði slasast. Þyrlan mun hafa verið á eftirlitsflugi yfir Vestfjörðum og Húnaflóa og mun hún hafa…

Það er fagnaðarefni að sveitastjórn Dalabyggðar kalli eftir hugmyndum um framtíðarskipulag og boði íbúa til fundar. Velheppnuð ráðstefna var haldin í Dalabúð í gær þar sem margvíslegar hugmyndir voru viðraðar um framtíðarhlutverk Dalanna í ferðaþjónustu. Margar afar heillandi tillögur komu…