Búðardalur.is
Menningarmiðja Dalanna
Búðardalur.is
Menningarmiðja Dalanna

Hin árlega Ólafsdalshátíð var haldin dagana 10.-11.ágúst eða um nýliðna helgi. Í dásemdarveðri nutu menn skemmtunar í fróðlegum fyrirlestrum, söng og spili eins og venjan er- auk gönguferða um svæðið. Fjölbreytileg dagskrá það vantaði ekki – vel að staðið. Heimaræktað grænmetið…

Nú líður að þeim tíma ársins að skólar landsins fyllast aftur af lífi eftir sumarleyfi og er Auðarskóli í Dalabyggð þar engin undantekning. Við ræddum stuttlega við Eyjólf Sturlaugsson skólastjóra um komandi skólaár og þær breytingar sem fyrir dyrum standa…

Athygli er vakin á sérstökum íbúafundi um ferðamannastaði í Dalabyggð sem haldin verður í Dalabúð miðvikudaginn 14.ágúst næstkomandi klukkan 16:00 til 20:00. Súpa og brauð verður í boði Dalabyggðar meðan á fundinum stendur. Það er áhugahópur um eflingu ferðaþjónustu í…

Dalakot er nýr gisti- og veitingastaður að Dalbraut 2 í Búðardal. Staðurinn hefur verið betur þekktur í gegnum árin sem Gistiheimlið Bjarg (Villapizza), en nýjir eigendur ákváðu með kaupum sínum á húsnæðinu að endurnýja nafnið. Það eru þau Pálmi Jóhannsson…

Hún er örugglega frumkvöðull í skóla- og félagsmálum um áratuga skeið í Búðardal. Þrúður Kristjánsdóttir heitir hún og undir hennar handleiðslu bæði sem kennara og skólastjóra grunnskólans hefur hún leiðbeint og horft á eftir á annað þúsund nemendum útí lífið…

Framkvæmdir hafa staðið yfir á lóðinni við tjaldstæðin í Búðardal að undanförnu en nú sér fyrir endann á því og kom flokkur frá Loftorku í Borgarnesi miðvikudaginn 17.júlí og kláraði að steypa aðstöðu fyrir húsbíla skammt fyrir ofan tjaldstæðið sjálft.…

Fálkaungi gerði sig heimakominn á rafmagnsstaur í heimatúninu á Vígholtsstöðum í Laxárdal nú laust fyrir hádegi í morgun. Fálkaunginn sat á staurnum í um það bil 10 mínútur og lét sér fátt um finnast þótt skógarþrestirnir, þúfutittlingurinn og stelkurinn gerðu…

Á mánudagskvöld verslunarmannahelgar þann 5.ágúst næstkomandi kemur hópur eldri danskra borgara frá sveitarfélagi Skvie-borgar á Jótlandi í Danmörku í „alltof stutta“ heimsókn til Búðardals með Jens Hvidtfeldt Nielsen fyrrverandi sóknarpresti í Hjarðarholtsprestakalli sem fararstjóra. Í tengslum við þessa heimsókn er…

Þjóðhátíðardeginum 17.júní var vel fagnað af Dalamönnum og öðrum sem fjölmenntu í skrúðgöngu í Búðardal sem farin var frá dvalarheimilinu Silfurtúni og að túninu fyrir utan Dalakot. Þar héldu fjallkonan og Einar K. Guðfinnsson forseti Alþingis ræður en að því…

Kæru Dalamenn og aðrir landsmenn. Til hamingju með daginn. Hátíðarhöld verða í dag í Búðardal og Saurbæ að venju. Safnast verður saman við dvalarheimilið Silfurtún í Búðardal klukkan 14:00 þar sem börnin fá fána og blöðrur. Gengið verður að Dalabúð…