Búðardalur.is
Menningarmiðja Dalanna
Búðardalur.is
Menningarmiðja Dalanna

Réttir fóru fram á fimm stöðum í Dölum í dag en það var í Brekkurétt í Saurbæ, Fellsendarétt í Miðdölum, Gillastaðarétt í Laxárdal, Hólmarétt í Hörðudal og Skerðingsstaðarétt í Hvammssveit. Ekki er annað að heyra en leitir og réttir hafi…

Sagt er frá því á fréttavef mbl.is í gær að maður á fertugsaldri hafi dottið og fótbrotnað við Grenshamar á Fellsströnd þar sem hann hafi verið við smalamennsku. Var hann fluttur með þyrlu Landhelgisgæslunnar á slysadeild Landspítalans í Fossvogi. Tildrög…

Konan sem féll af hestbaki í Laxárdal í gær norðan við bæinn Lambeyra er ekki í lífshættu að því er fram kemur á vef mbl.is nú í morgun. Í fyrstu var talið að konan væri með alvarlega höfuðáverka en meiðsl…

Fyrstu réttir haustsins í Dölunum fóru fram síðstliðinn laugardag í ágætu veðri þegar réttað var í Ljárskógarétt. Þó var nokkuð svalt um morguninn þegar leitarmenn lögðu af stað á Ljárskógafjall en svo hlýnaði þegar leið á daginn skv. einum leitarmanna…

Alvarlegt slys varð í Laxárdal í Dölum fyrr í dag þegar eldri kona féll af hestbaki rétt norðan við bæinn Lambeyra í Laxárdal. Fram kemur á vef mbl.is að konan sé frá Bandaríkjunum og hafi hún verið með skerta meðvitund…

Rally Reykjavík hófst í gær en að þessu sinni kallast keppninShell VPower Rally Reykjavík 2012. Okkar maður Örn (Dali) Ingólfsson tekur þátt í keppninni að þessu sinni sem svo oft áður en aðstoðarökumaður hans að þessu sinni heitir Óskar Jón. Samkvæmt…

Heiðar Þórðarson, Gullengi 9 áður til heimilis að Lækjarhvammi 4 í Búðardal er látinn. Tilkynning frá aðstandendum: Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, Heiðar Þórðarson, Gullengi 9 áður Lækjarhvammi 4, lést 4. september sl. Útför hans verður gerð…

Þeir voru ekki margir farþegarnir sem nýttu sér fyrstu ferð Strætó bs vestur í Dali í gær. Í raun var enginn farþegi sem var á leið í Búðardal en nokkrir nýttu sér ferðina upp í Borgarnes. Þá voru einhverjir sem…

Laugardaginn 25.ágúst síðastliðinn var efnt til hátíðar í samkomuhúsinu Röðli á Skarðsströnd. Samkomuhúsið var byggt á árabilinu 1942 til 1944 af Ungmennafélaginu Vöku á Skarðsströnd. Þar voru haldnar samkomur og skemmtanir á árum áður og voru réttarböllin sem þar voru…

Næstkomandi sunnudag þann 2.september mun Strætó BS bæta Búðardal inní leiðakerfi sitt ásamt fleiri stöðum á Vesturlandi. Þeir sem hafa hug á því að kíkja vestur í réttir í næsta mánuði en hafa ekki fundið sér far geta nú tekið…