Búðardalur.is
Menningarmiðja Dalanna
Búðardalur.is
Menningarmiðja Dalanna

Kæra hefur verið lögð fram á hendur Bleiku Dalahrútunum sem eru að búa sig undir evrópumeistaramótið í mýrarbolta um verslunarmannahelgina. Það er eitt af liðinunum í mýrarboltanum sem stendur fyrir þessari kæru en liðið kallar sig Djöfull er ég fullur.…

Stofnað hefur verið hið nýja mýrarboltafélag Dalasýsla Pink Rams eða Bleiku Dalahrútarnir. Félagið hyggst senda sigurlið til Ísafjarðar um verslunarmannahelgina til þess að sækja gullverðlaunin í þessari mjög svo vinsælu keppni sem ætíð er haldin um verslunarmannahelgina á Ísafirði. Einn…

Ljósm: Steina Matt Ljósm: Steina Matt Líkt og fram kemur á vef mbl.is nú í morgun varð banaslys á Steingrímsfjarðarheiði í gærkvöldi þegar fólksbifreið fór út af veginum þar Hólmavíkur megin. Íslenskur karlmaður beið bana og tveir erlendir ferðamenn slösuðust…

Veiði í neðri Haukadalsá í Dölum hefur gengið mjög vel í sumar að sögn veiðivarðar þar en 287 laxar voru komnir þar á land í morgun. Á svipuðu tímabili í fyrra voru rúmlega 200 laxar komnir á land og því…

Við slóum á þráðinn til Sigurðar Jökulssonar bónda á Vatni í Haukadal í dag og inntum hann eftir fréttum úr Haukadal frá því sem liðið er af sumri. Sigurður var kátur að vanda og sagðist glaður með að loksins hefði…

Daladóttirin Jófríður Ísdís Skaftadóttir(Skaftasonar,Steinólfssonar frá Ytri-Fagradal), sigraði kringlukastkeppni kvenna á meistarmóti FRÍ þann 15.júlí síðastliðinn. Jófríður kastaði kringlunni 34,38 metra og hlaut gullverðlaun fyrir. Jófríður er aðeins 14 ára gömul og mun það vera einstakt að 14 ára stúlka sigri í…

Frá Laxá í Dölum er það að frétta að 40 löxum hefur verið landað það sem af er veiðitímabili. Að sögn Árna Friðleifssonar staðarhaldara og veiðivarðar í Laxá í Dölum er orðið mjög vatnslítið en töluvert líf er að sjá…

Bærinn Hóll í Hörðudal brann í nótt, en þetta kemur fram á fréttavefnum MBL.is. Slökkvilið Dalabyggðar mun hafa fengið tilkynningu um brunann um klukkan 06:20 í morgun og voru fjórir slökkviliðsmenn á tveimur dælubílum komnir á staðinn um 20 mínútum…

Grettir Börkur Guðmundsson er flestum Dalamönnum að góðu kunnur en hann rak meðal annars söluskála Olís og Skeljungs í Búðardal um árabil eftir að hafa tekið við rekstrinum af Kristjönu Ágústsdóttur. Söluskálinn er sama hús og þar sem ÁTVR er með…

Góð stemmning var á bæjarhátíðinni „Heim í Búðardal“ nú um liðna helgi. Segja má að hátíðin hafi heppnast vel í alla staði og allir hafi skemmt sér vel. Höfðu sumir á orði að svona bæjarhátíð væri nauðsynleg fyrir Dalamenn til…