Búðardalur.is
Menningarmiðja Dalanna
Búðardalur.is
Menningarmiðja Dalanna

Þann 17.júní 2012 á þjóðhátíðardag okkar Íslendinga var Halldór Þorgils Þórðarson fyrrum bóndi á Breiðabólsstað á Fellsströnd og tónlistarmaður með meiru um áratugaskeið í Dalabyggð, sæmdur hinni íslensku fálkaorðu við hefðbundna athöfn að Bessastöðum. Halldór hefur verið burðarás í tónlistarlífi…

Þjóðhátíðardagurinn 17.júní var haldin hátíðlegur í Búðardal í dag. Skrúðganga var frá dvalarheimilinu Silfurtúni klukkan 13:00 og gengið var á mótssvæði hestamannafélagsins Glaðs þar sem hefðbundin hátíðarhöld fóru fram og fjallkonan hélt hátíðarræðu. Fjallkona að þessu sinni var Jóhanna Sigrún…

Menningarvefsíðan Búðardalur.is óskar Dalamönnum og landsmönnum öllum innilega til hamingju með þjóðhátíðardaginn 17.júni og vonar að dagurinn verði öllum skemmtilegur og eftirminnilegur. Samkvæmt því er fram kemur á Dalir.is verða hátíðahöld á 17.júní sem hér segir í Dalabyggð: Safnast saman…

Breiðabólsstaður – Ljósm: Mats Wibe Lund Breiðabólsstaður – Ljósm: Mats Wibe Lund Bílvelta varð nú skömmu fyrir hádegi við bæinn Breiðabólsstað í Miðdölum. Um var að ræða Range Rover jeppa með bátakerru og gúmmíbát í eftirdragi. Þrennt var í bifreiðinni…

Ljósm: Steina Matt Björgunartæki í Dalabyggð – Ljósm: Steina Matt Slökkvilið Dalabyggðar var kallað út laust fyrir klukkan 21:00 í kvöld en þá var tilkynnt um reyk sem lagði undan þakkassa á húsi Dvalarheimilisins að Fellsenda í Miðdölum. Allt tiltækt…

Silfurtún – Ljósmynd: Hjörtur V.Jörundsson Vorhátíð Dvalarheimilisins Silfurtúns í Búðardal var haldin þann 9.júní 2012 í blíðskaparveðri. Ungir jafnt sem aldnir skemmtu sér og öðrum við undirleik Nikkólínu, harmonikuhljómsveitar Dalanna. Þorgrímur og Helga mættu með kræsingar frá rjómabúi sínu á…

Kristinn Jónsson Hér er á ferðinni skemmtilegt viðtal sem Þorgeir Ástvaldsson átti við Kristinn Jónsson frá Hallsstöðum á Fellsströnd. Kristinn er Dalamönnum að góðu kunnur en Kristinn bjó í yfir 50 ár í Dölum og starfaði við hin ýmsu störf ásamt…

Nú þegar vika er liðin frá opnun Búðardalur.is og fyrir liggja tölur um fjölda heimsókna á síðuna getum við sem að vefsíðunni stöndum ekki verið annað en ángæðir með viðbrögðin. Frá kvöldi 28.maí til 2.júní hefur vefsíðan fengið 3.400 heimsóknir.…

Búðardalur.is óskar sjómönnum öllum og fjölskyldum þeirra innilega til hamingju með sjómannadaginn. Í tilefni sjómannadagsins birtum við hér myndband sem Hjörtur Vífill Jörundsson tók á dögunum í Skarðsstöð á Skarðsströnd þegar Hugrún DA 1 kom með grásleppufarm sinn til löndunar.…

Fram kemur á fréttavef Skessuhorns að slökkvilið Dalabyggðar hafi verið kallað út í gærkvöldi vegna sinubruna á Laxárdalsheiði. Þar mun hafa kviknað í sinu útfrá sígarettuglóð en fólk við girðingarvinnu mun hafa átt þar hlut að máli. Bruninn mun hafa…