Category Fréttir

Íslandsmeistaramót í rúningi 2012

Íslandsmeistaramót í rúningi 2012  Ágæti rúningsmaður/kona er ekki þinn tími kominn? Félag sauðfjárbænda í Dalasýslu stendur fyrir Íslandsmeistaramótinu í rúningi laugardaginn 27. október næstkomandi. Keppnin hefst kl 14:00 í reiðhöllinni í Búðardal. Kemur Íslandsmeistarinn Hafliði Sævarsson Fossárdal til með að verja titilinn?…

Haustfagnaður FSD 2012

Haustfagnaður FSD verður haldin helgina 26.-27.október næstkomandi. Föstudaginn 26.október verður hrútasýning á Valþúfu á Fellsströnd, vesturhólfi, og um kvöldið verður sviðaveisla á Laugum í Sælingsdal. Þar verður einnig hagyrðingakvöld, söngur og dans. Meðal hagyrðinga verða: Ágúst Marinó Ágústsson Sauðanesi, Jóhannes Sigfússon…

Konu bjargað úr sjálfheldu

Björgunarsveitin Ósk í Dalabyggð var kölluð út í gærkvöldi um kl.21:00 vegna konu sem hafði lent í sjálfheldu á Hrístindahnúk fyrir ofan Fellsendaskóg í Miðdölum. Samkvæmd Guðmundi Frey Geirssyni formanni Björgunarsveitarinnar Óskar hafði konan sem var ein á ferð, samband…

Brekkurétt í Saurbæ (myndir)

Réttir fóru fram á fimm stöðum í Dölum í dag en það var í Brekkurétt í Saurbæ, Fellsendarétt í Miðdölum, Gillastaðarétt í Laxárdal, Hólmarétt í Hörðudal og Skerðingsstaðarétt í Hvammssveit. Ekki er annað að heyra en leitir og réttir hafi…

Konan ekki í lífshættu

Konan sem féll af hestbaki í Laxárdal í gær norðan við bæinn Lambeyra er ekki í lífshættu að því er fram kemur á vef mbl.is nú í morgun. Í fyrstu var talið að konan væri með alvarlega höfuðáverka en meiðsl…

Ljárskógaréttir gengu vel

Fyrstu réttir haustsins í Dölunum fóru fram síðstliðinn laugardag í ágætu veðri þegar réttað var í Ljárskógarétt. Þó var nokkuð svalt um morguninn þegar leitarmenn lögðu af stað á Ljárskógafjall en svo hlýnaði þegar leið á daginn skv. einum leitarmanna…

Alvarlegt hestaslys í Laxárdal

Alvarlegt slys varð í Laxárdal í Dölum fyrr í dag þegar eldri kona féll af hestbaki rétt norðan við bæinn Lambeyra í Laxárdal. Fram kemur á vef mbl.is að konan sé frá Bandaríkjunum og hafi hún verið með skerta meðvitund…