Búðardalur.is
Menningarmiðja Dalanna
Búðardalur.is
Menningarmiðja Dalanna

Daladóttirin Jófríður Ísdís Skaftadóttir(Skaftasonar,Steinólfssonar frá Ytri-Fagradal), sigraði kringlukastkeppni kvenna á meistarmóti FRÍ þann 15.júlí síðastliðinn. Jófríður kastaði kringlunni 34,38 metra og hlaut gullverðlaun fyrir. Jófríður er aðeins 14 ára gömul og mun það vera einstakt að 14 ára stúlka sigri í…

Frá Laxá í Dölum er það að frétta að 40 löxum hefur verið landað það sem af er veiðitímabili. Að sögn Árna Friðleifssonar staðarhaldara og veiðivarðar í Laxá í Dölum er orðið mjög vatnslítið en töluvert líf er að sjá…

Bærinn Hóll í Hörðudal brann í nótt, en þetta kemur fram á fréttavefnum MBL.is. Slökkvilið Dalabyggðar mun hafa fengið tilkynningu um brunann um klukkan 06:20 í morgun og voru fjórir slökkviliðsmenn á tveimur dælubílum komnir á staðinn um 20 mínútum…

Grettir Börkur Guðmundsson er flestum Dalamönnum að góðu kunnur en hann rak meðal annars söluskála Olís og Skeljungs í Búðardal um árabil eftir að hafa tekið við rekstrinum af Kristjönu Ágústsdóttur. Söluskálinn er sama hús og þar sem ÁTVR er með…

Góð stemmning var á bæjarhátíðinni „Heim í Búðardal“ nú um liðna helgi. Segja má að hátíðin hafi heppnast vel í alla staði og allir hafi skemmt sér vel. Höfðu sumir á orði að svona bæjarhátíð væri nauðsynleg fyrir Dalamenn til…

Hafþór Júlíus Björnsson Hafþór Júlíus Björnsson Vestfjarðavíkingurinn 2012 var krýndur í Búðardal síðastliðinn sunnudag 8.júlí en þar fóru fram síðustu tvær greinar keppninnar, Uxaganga og Steinatök. Titilinn í ár varði Hafþór Júlíus Björnsson en hann hefur sigrað í síðustu…

Veiði hefur gengið þokkalega það sem af er veiðisumri í Dölum að sögn Árna Friðleifssonar staðarhaldara og veiðivarðar í Laxá í Dölum. Stangveiðifélag Reykjavíkur hefur á leigu fleiri ár í Dölum en þær eru Fáskrúð, Dunká og Efri Haukadalsá en…

Bæjarhátíðin „Heim í Búðardal“ hófst formlega klukkan 15:00 í dag en þá hófst listasmiðja fyrir krakka úr grunnskólanum ogvar þemað „sveitin mín, bærinn minn“. Blindrabolti hófst svo á sparkvellinum klukkan 17:00 og klukkan19:00 til 21:00 var kjötsúpa í boði á…

Kraftakeppnin Vestfjarðavíkingurinn 2012 hófst í gær þann 4.júlí í Stykkishólmi og lýkur keppninni á bæjarhátíðinni „Heim í Búðardal“ næstkomandi laugardag. Morgunblaðið fjallaði um keppnina á vef sínum í dag en þá var einnig keppt um borð í Breiðafjarðarferjunni Baldri. Frétt…

Það voru vaskir krakkar sem stóðu í ströngu í Búðardal í gær við að undirbúa og standsetja ökutæki sín fyrir kassabílarallýið sem KM-Þjónustan í Búðardal stendur fyrir á bæjarhátíðinni „Er ég kem heim í Búðardal“ um komandi helgi 6.-8.júlí. Um…