Pétur Jóhann – óheflaður í Búðardal

0
2532

pjs-3615Hinn eini sanni Pétur Jóhann Sigfússon ætlar að skella sér í Búðardal með sýninguna sína „Pétur Jóhann óheflaður“ fimmtudagskvöldið 11. júní næstkomandi.

Það er ekki á hverjum degi sem að þessi fáránlega fyndni og prýðisgóði piltur er með uppistand öllum opið og hvað þá í Búðardal.

Pétur er eins og alþjóð veit gríðarlega skemmtilegur og eftirsóttur uppistandari og þar að auki hefur hann unnið marga og stóra sigra í kvikmyndum og sjónvarpi.
Sýningin PÉTUR JÓHANN ÓHEFLAÐUR er tveggja klukkustunda uppistandssýning samin af Pétri sjálfum. Síðustu mánuði hefur hann flakkað um Ísland með þessa sýningu og fyllt hvert húsið á fætur öðru.

Forsala miða verður í Dalakoti og hefst miðvikudaginn 3. júní.

2.900 í forsölu // 3.900 við hurð.

16 ára aldurstakmark er á sýninguna. 

Húsið opnar klukkan 20:00 en skynsamlegt er að mæta snemma til að ná góðum sætum.

Taktu kvöldið frá og græjaðu frí í vinnunni fram að jólum. Harðsperrur í maga munu orsaka fjarveru þína.

Við tókum stutt spjall við Pétur Jóhann varðandi komu hans í Búðardal.

Viðtalið má sjá hér fyrir neðan.