Blóðug jōrð: Vilborg Davíðsdóttir segir sōgu Auðar djúpúðgu.

0
2518
Blóðug jōrð: Vilborg Davíðsdóttir segir sōgu Auðar djúpúðgu.
Blóðug jōrð: Vilborg Davíðsdóttir segir sōgu Auðar djúpúðgu.

Vilborg Davíðsdóttir segir frá landnámskonunni Auði djúpúðgu og nýrri bók sinni í Auðarskóla, Búðardal næstkomandi miðvikudag 25.október kl.18:00

Blóðug jörð
Árið er 883. Veldi norrænna manna á Bretlandseyjum riðar til falls eftir dauða Ólafs hvíta Dyflinnarkonungs og Þorsteinn rauður berst við að halda velli á Katanesi þar sem innfæddir gerast æ herskárri. Lífið er hverfult og enginn veit Urðar hug. Á augabragði stendur Auður Ketilsdóttir ein uppi, umkringd óvinum, ábyrg fyrir lífi ungra sonarbarna. Stefnan er tekin til eylandsins á enda veraldar þar sem ár og vötn eru sögð iða af fiski, jökulhettur ber við himin og sjálf jörðin spýr eldi.
Á suðurströnd Íslands hafa þrælar gert uppreisn og goldið grimmilega fyrir. Nýja landið er vígt blóði. Einn kemst lífs úr þeim hildarleik: maður sem á harma að hefna á ætt Dyflinnarkonungs.

Vilborg Davíðsdóttir lýkur hér þríleiknum um konuna sem á engan sinn líka í landnámssögu Íslands með sjálfstæðri sögu um siglinguna yfir hafið. Fyrri bækurnar tvær, Auður og Vígroði, hlutu fádæmagóðar viðtökur lesenda og gagnrýnenda og var sú fyrri tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna.

Viðburðurinn er í boði Sōgufélags Dalamanna