Morgunþátturinn Í bítið á útvarpsstöðinni Bylgjunni tók í morgun viðtal við ráðsmanninn Björn Henry Kristjánsson á Lambeyrum í Laxárdal.
Tilefni viðtalsins við Björn Henry var vegna þess að sauðburður er hafinn á bænum en eins og við greindum frá hér í vikunni er einnig hafinn sauðburður á bænum Emmubergi í Dalabyggð.
Viðtalið við Björn Henry má heyra hér. Viðtal við Björn Henry
Þess má einnig geta að viðtal er við Björn Henry og konu hans í nýjasta blaði Bændablaðsins.