Fertugasta þorrablót Suðurdala verður haldið laugardagskvöldið 9.febrúar næstkomandi í Félagsheimilinu Árbliki. Húsið opnar klukkan 20:00 og hefst borðhald stundvíslega klukkan 20:30.
Höfðakaffi sér um veitingarnar og eftir heimatilbúnu skemmtiatriðin mun hljómsveitin Upplifting halda uppi stuðinu fram á nótt.
Verður þú Suðurdalamaður ársins?
Tekur þú í nefið?
Kemst þú í nýju nefndina?
Hver fór í fríið?
Hverjir fóru á dansnámskeið?
Öllum þessum spurningum verður svarað á þorrablótinu.