Fyrirtækið Vélaborg landbúnaður ehf sem meðal annars er með umboð fyrir Zetor dráttarvélarnar er nú á ferð um landið þar sem bændum og búaliði gefst kostur á að skoða nýjustu dráttarvélarnar frá Zetor og reynsluaka þeim.
Í dag 23.september verður opið hús hjá KM-Þjónusunni frá kl.16:00 til 20:00 þar sem Vélaborg landbúnaður kynnir Zetor dráttarvélarnar en boðið verður uppá kaffi og léttar veitingar á meðan sýningunni stendur.
Bændur í Dölum og nærsveitum eru hvattir til að mæta og prufukeyra vélarnar og fá upplýsingar hjá sölumönnum sem verða á staðnum.
Nánari upplýsingar má einnig finna hér.