Stórhríð var í Dölum í dag og var öllu skólahaldi í Auðarskóla aflýst sökum veðursins en einnig var mikil ófærð. Vegir lokuðust víða, meðal annars á Bröttubrekku, Laxárdalsheiði og á Svínadal.
Rebecca Ostenfeld bóndi í Hólum í Hvammssveit ákvað að taka veðurofsann upp á myndband í morgun og sendi hún myndbandið til mbl.is.
Segja má að myndband Rebeccu hafi hitt í mark hjá lesendum mbl.is en fréttin með myndbandi hennar sem ber fyrirsögnina „Sturlaður stormur í Dalasýslu“ er mest lesna almenna fréttin á vefnum nú kl.22:00.
Myndbönd Rebeccu birtust einnig á vefnum Vísir.is
Myndbönd Rebeccu má sjá hér fyrir neðan.