Vígroði: Viðtal við Vilborgu Davíðsdóttur

0
1952

vigrodiÁ dögunum tókum við hús á Vilborgu Davíðsdóttur rithöfundi  vegna útgáfu bókarinnar Vígroða sem Vilborg skrifar um Auði Djúpúðgu. Vígroði er framhald af skáldsögunni Auður sem kom út árið 2009 en hún naut geysilegra vinsælda og var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna.

Á bókarkápu Vígroða segir: Auður djúpúðga elur upp son sinn á eigin jörð á Katanesi. Hún hefur haldið sig fjarri Suðureyjum frá því að leiðir hennar og Ólafs hvíta Dyflinnarkonungs skildu af ótta við að Ketill flatnefur, faðir hennar, gefi hana manni á ný.

Að veturnóttum 865 kemur hún þó í föðurhús, til brúðkaups bróður síns og dóttur Ingólfs Arnarsonar. Þar spá dísirnar því að vígroða muni brátt slá á víkinga í Vesturhafi. Og víst horfir ófriðvænlega á norðanverðum Bretlandseyjum þar sem innfæddir veita norrænum mönnum æ meiri mótspyrnu og Orkneyjajarl ásælist aukin völd. Þá ræðst Dyflinnarkonungur inn í Péttland, öllum að óvörum, og leiðir þeirra Auðar liggja saman að nýju.