Umferðaróhapp varð við bæinn Magnússkóga í Hvammssveit á tíunda tímanum í kvöld þegar ökumaður missti stjórn á bifreið sinni með þeim afleiðingum að hún hafnaði ofan í skurði.
Ökumann sakaði ekki en lögreglan var kölluð á staðinn ásamt kranabifreið frá KM-Þjónustunni sem dró bifreiðina upp. Bifreiðin er mjög mikið skemmd þó hún virðist heilleg á þeim ljósmyndum sem teknar voru á vettvangi í kvöld.
Ekki er vitað hvers vegna ökumaður missti stjórn á bifreiðinni með fyrrgreindum afleiðingum.